Skráningarfærsla handrits

JS 15 4to

Lögrit ; Ísland, 1676

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1
Jósk lögbók
Titill í handriti

Sú Józka Lands-Laga-bók (á íslensku)

Efnisorð
2
Recessar
Titill í handriti

Kóngsins Recess

Efnisorð
3
Dönsku lög Kristjáns fimmta, skýringar
Athugasemd

Brot úr dönsku lögum Kristjáns V (á dönsku, skrifað ca. 1730)

Tungumál textans
Danish
Efnisorð
4
Kirkjunnar embætti og myndugleikur (konungsbréf 1629)
Titill í handriti

Þetta eftirfylgjandi kóngsbréf er inngangur til þeirra dönsku ordinantiu, af hvorri sú norska, eður vor, ordinantia er útdregin

Athugasemd

Þetta, datum 1539, en það kóngsbréf sem stendur fyrir framan þá norsku vora prentuðu. Útgefið 1607

Efnisorð
5
Umbætur Kristjáns IV
Titill í handriti

Umbætur eða skikkun Kristjáns IV um kirkjunnar embætti og myndugleika við iðrunarlausa, sömuleiðis aðskiljanleg auðlegrar stéttar erindi. Útgefin og prentuð í Kaupmannahöfn af Henrich Walkirch anno 1629. En á íslensku útlögð af herra Gísla Oddsyni s.s.s. anno 1633 og nú skrifuð 1676

Athugasemd

s.s.s gæti þýtt stratum super stratum (uppskrift af uppskrift) eða supra scripti sunt (yfirskrifaðir eru)

Efnisorð
6
Langa réttarbók
Athugasemd

Langa réttarbók Kristjáns I. Með sömu hendi og 3

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír.

Blaðfjöldi
148 blöð (205 mm x 156 mm)
Skrifarar og skrift
Tvær hendur ; Skrifarar:

Óþekktir skrifarar

Band

Skinnband.

Uppruni og ferill

Uppruni
Ísland 1676 og 1730.
Aðföng

Alþingi keypti handrita- og bókasafn Jóns Sigurðssonar árið 1878. Safnið var afhent Landsbókasafni að honum látnum, en hann lést 7. desember 1879. Það komst í hendur safnsins árið 1881 er það var flutt í Alþingishúsið.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill
Sigríður Hjördís Jörundsdóttir yfirfór skráningu 28. júní 2012 ; Júlíus Árnason frumskráði, 6. júlí 2010 ; Handritaskrá, 2. b. ; Átaksverkefni 2010.
Lýsigögn
×

Lýsigögn