„Kristinréttur forni ásamt biskupastatútum ýmsum“
„Sá nýi og bætti Kristiréttur (þ.e. Ólafs biskups Hjaltasonar og Árna Gíslasonar) o.fl. lagaboð forn, lútandi að kirkju“
Pappír.
Óþekktir skrifarar
Sumt er með hendi skrifara Þórðar biskups Þorlákssonar, gert handa Þormóði Torfasyni (sbr. athugasemd AM. á blaði 125), en sumt með hendi skrifara Árna Magnúsonar.
Alþingi keypti handrita- og bókasafn Jóns Sigurðssonar árið 1878. Safnið var afhent Landsbókasafni að honum látnum, en hann lést 7. desember 1879. Það komst í hendur safnsins árið 1881 er það var flutt í Alþingishúsið.