Meðal efnis bænarskrár og nefndarálit.
Handritið er í þremur öskjum, merktum a, b og c.
Alþingi keypti handrita- og bókasafn Jóns Sigurðssonar árið 1878. Safnið var afhent Landsbókasafni að honum látnum, en hann lést 7. desember 1879. Það komst í hendur safnsins árið 1881 er það var flutt í Alþingishúsið.
Skráning Páls Eggerts Ólasonar á handritinu er aðgengileg í ritinu Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins, 2. bindi, bls. 485.
Guðrún Laufey Guðmundsdóttir frumskráði, 16. maí 2019.