Pappír.
Óþekktur skrifari
Ferill handrits er rakinn á fremra saurblaði 3r.
Band frá árunum 1700-1780 (200 mm x 167 mm x 84 mm).
Bókaspjöld úr pappa klædd pappír með brúnum skinnkili. Saumað á utanáliggjandi bönd. Kjölur þrykktur með gyllingu, skreytingar og titill. Handsaumaður kjölkragi úr lérefti að ofan og neðan.Snið blálituð.
Spjöld undin og trosnuð á hornum.
Límmiði á fremra spjaldi.
Gjöf frá dr. Konrad Maurer 1899; honum gaf Þórður Jónasson just.1858; handritið hefur verið í eigu Sveins Sölvasonar lögmanns (samanber skjólblað fremst).
Landsbókasafn keypti handritasafn Reykjavíkurdeildar Hins íslenska bókmenntafélags 1901.
Athugað fyrir myndatöku 27. október 2010: Pappír víða viðkvæmur. Flokkur: C.
Myndað í nóvember 2010.
Myndað fyrir handritavef í nóvember 2010.