Handritið er í fjórum hlutum, I-IV. Í handritalýsingu segir: „Ósamstæður tíningur og marklítið rusl (sumt úr spjöldum af bókum)“.
Pappír.
ÍB 980 I - IV 8vo liggja nú saman í hvítri öskju merktri ÍB 980 8vo.
ÍB 878 - 980 8vo er komið til bókmenntafélagsins smám saman á árunum 1895 - 1912 frá Jóni Borgfirðingi.
Landsbókasafn keypti árið 1901 handritasafn Hins íslenska bókmenntafélags, Kaupmannahafnardeildar (ÍB) og Reykjavíkurdeildar (ÍBR).
Skráning Páls Eggerts Ólasonar á handritinu er aðgengileg í ritinu Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins, 3. bindi, bls. 204.
Guðrún Laufey Guðmundsdóttir frumskráði, 17. desember 2018.