„Tafla yfir 19du öld krists fæðingar. Hvar af svo vel kirkju árs tíðir. Sem og það íslenska tímatal fljótlega má sjá og finna, eftir tilvísun forskriftana og hvörs árs röð yfir þvera opnu. Samantekið á Borgarhöfn af presti Vigfúsi Benediktssyni árið 1800.“
ÍB 878 - 980 8vo er komið til bókmenntafélagsins smám saman á árunum 1895 - 1912 frá Jóni Borgfirðingi.
Landsbókasafn keypti árið 1901 handritasafn Hins íslenska bókmenntafélags, Kaupmannahafnardeildar (ÍB) og Reykjavíkurdeildar (ÍBR).
Skráning Páls Eggerts Ólasonar á handritinu er aðgengileg í ritinu Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins, 3. bindi, bls. 193.
Guðrún Laufey Guðmundsdóttir frumskráði, 13. september 2018.