„Rímur af þeim Högna og Héðni kveðnar árið 1819 af Sigurði Breiðfjörð.“
„Enn skal smakka öldin dæl…“
5 rímur.
Aftast stendur: „Ég held skáldsins eigin hönd JBorgfirðingur.“.
„Nauðsynlegt andsvar til Fjölnis frá Sigurði Breiðfjörð.“
Aftast stendur: „S.Breiðfj. eiginn handr. JBf.“.
„Mér þótti skrýtið mjög að sjá…“
Við titilinn hefur verið skrifað: „Um Sigurð á Hjalla“.
„Fjör og kraftur Fjölnirs…“
„Rímur af Hallfreði Óttarssyni Vandræðaskáldi.“
„Kom þú lystug hingað Hlökk…“
2 rímur.
Aftast stendur: „Líklegast eigi komist lengra að yrkja eða þá fram haldið tapað JBf.“
Laus blöð með kvæðum og ýmsum athugasemdum.
Pappír.
ÍB 878 - 980 8vo er komið til bókmenntafélagsins smám saman á árunum 1895 - 1912 frá Jóni Borgfirðingi.
Landsbókasafn keypti árið 1901 handritasafn Hins íslenska bókmenntafélags, Kaupmannahafnardeildar (ÍB) og Reykjavíkurdeildar (ÍBR).
Skráning Páls Eggerts Ólasonar á handritinu er aðgengileg í ritinu Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins, 3. bindi, bls. 192.
Guðrún Laufey Guðmundsdóttir frumskráði, 11. september 2018.