„Ágrip og innihald. Sögu af Lykla Pétri og Magilónu.“
Rímur 5-9.
Aftast stendur: „Ort af síra Hallgrími Péturssyni hérumbil 1650“.
„Sendibréf til Íslandskóngsins Jörgen Jörgensen til Reykjavíkur skrifað þann 19. ágúst 1809.“
Uppskrift af bréfi frá Jóni Guðmundssyni sýslumanni Vestur-Skaftafellssýslu til Jörundar hundadagakonungs.
„Hér hefst Bjarnveigar Ríma“
„Óma lagar aðfallið …“
Í handritaskránni er höfundur sagður Jón Hákonarson.
135 erindi.
„Már hefur búið manna göfgastur …“
Pappír.
Skinnband.
ÍB 878 - 980 8vo er komið til bókmenntafélagsins smám saman á árunum 1895 - 1912 frá Jóni Borgfirðingi.
Landsbókasafn keypti árið 1901 handritasafn Hins íslenska bókmenntafélags, Kaupmannahafnardeildar (ÍB) og Reykjavíkurdeildar (ÍBR).
Skráning Páls Eggerts Ólasonar á handritinu er aðgengileg í ritinu Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins, 3. bindi, bls. 190.
Guðrún Laufey Guðmundsdóttir frumskráði, 1. september 2018.