Teikning af hring með mánaðarnöfnum og útskýringum.
Fremst í handritinu liggur blað úr prenti frá 1770.
Á íslensku.
„Ein ágæt predikun.“
„ Hylli og hamingja gunst og góðvilji þess mikla Skraparots veitist ykkur öllum hér saman komnum hans niðjum og undirsátum …“
Pappír.
Landsbókasafn keypti árið 1901 handritasafn Hins íslenska bókmenntafélags, Kaupmannahafnardeildar (ÍB) og Reykjavíkurdeildar (ÍBR).
Skráning Páls Eggerts Ólasonar á handritinu er aðgengileg í ritinu Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins, 3. bindi, bls. 188.
Guðrún Laufey Guðmundsdóttir frumskráði, 27. ágúst 2018.