Skráningarfærsla handrits

ÍB 782 8vo

Samtíningur ; Ísland, 1875

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1
Lýsing Útskálaprestakalls
Athugasemd

Lýsing Útskálaprestakalls, ásamt skilríkjum nokkurum um það efni, eftir síra Sigurð Br. Sívertsen.

2
Suðurnesjaannáll
Titill í handriti

Lítill Annáll viðvíkjandi Suðurnesjum einkum áhrærandi manntjón skiptapa og slysfarir.

Athugasemd

Lítill annáll viðvíkjandi Suðurnesjum 1210-1869, ásamt almennum annál 1817-1830, eftir sama.

3
Prestatal í Norðlendingafjórðungi
Titill í handriti

Prestatal í Norðlendingafjórðungi frá Siðaskiptum til byrjunar 19du aldar eða samsteypingar Hóla og Skálholts stipta.

Athugasemd

Þar með Iubilkennarar í Hólastipti.

Efnisorð
4
Úr annálum
Athugasemd

Úr annálum síra Eiríks Sölvasonar (árin 1663-1731) og síra Halldórs Gíslasonar (árin 1495-1627).

5
Nafnaskrár og bæjaannáll
Athugasemd

Samtíningur um búendur í Útskála og Hvalsness sóknum frá 1772 og úr gömlu Sálnaregistri Hvalsnesþinga og Útskála og fleira svipað eftir síra Sigurð Br. Sívertsen, ásamt bæjaannál um Rosmhvalanes, hreppstjóraannál á Suðurnesjum og prestatali á Útskálum, eftir sama.

6
Annálar og aldafarsbók
Titill í handriti

Annálar og Aldarfarsbók frá 1800 framhaldið

Athugasemd

Til 1834 (að litlu með hendi síra Sigurðar).

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír.

Blaðfjöldi
251 blað (168 mm x 102 mm).
Skrifarar og skrift
Ein hönd að mestu.

Sigurður Br. Sívertsen

Band

Skinnband

Uppruni og ferill

Uppruni
Ísland, um 1875.
Ferill
ÍB 782-783 8vo frá Jóni Borgfirðingi: en þetta handrit fékk hann að gjöf frá ritara handritsins 8. október 1881.
Aðföng

Landsbókasafn keypti árið 1901 handritasafn Hins íslenska bókmenntafélags, Kaupmannahafnardeildar (ÍB) og Reykjavíkurdeildar (ÍBR).

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

Skráning Páls Eggerts Ólasonar á handritinu er aðgengileg í ritinu Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins, 3. bindi, bls. 172.

Guðrún Laufey Guðmundsdóttir frumskráði, 24. apríl 2018.

Notaskrá

Titill: Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins
Ritstjóri / Útgefandi: Páll Eggert Ólason
Umfang: I-III
Lýsigögn
×

Lýsigögn