Prentuð, dönsk almanök, með minnisgreinum síra Vigfúsar Björnssonar á Skinnastöðum, 1792-5.
„Almanak fyrir árið 1841.“
Prentað á íslensku með minnisgreinum síra Benedikts á Hólum, sonar Vigfúsar.
Pappír. Margvíslegt brot.
Skinnbindi.
Landsbókasafn keypti árið 1901 handritasafn Hins íslenska bókmenntafélags, Kaupmannahafnardeildar (ÍB) og Reykjavíkurdeildar (ÍBR).
Skráning Páls Eggerts Ólasonar á handritinu er aðgengileg í ritinu Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins, 3. bindi, bls. 160.
Guðrún Laufey Guðmundsdóttir frumskráði, 17. nóvember 2017.