Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

ÍB 246 8vo

Dyggðaspegill og sálmar ; Ísland, 1691

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1 (1r-46v)
Dyggðaspegill
Höfundur

Lucas Martinus

Upphaf

… En þó hefur Guð í þeirri kristilegu …

Niðurlag

Endað með skyndi dag 18 Decembris Anno 1691

Ábyrgð

Þýðandi : Jón Arason

Athugasemd

Vantar framan af. Textinn hefst undir lok fyrsta kafla.

Á bl. 35v mótar fyrir nafninu Ch Magnúsdóttir.

2
Sálmurinn Miserere
Titill í handriti

Ein góð og gagnleg umþenking og útlegging yfir sálminn Miserere þann 51 í sálmatölunni af Hieronymo Savanazola sem var einn bróðir og prédikari í Feraria hvörja hann diktaði á seinustu dögum síns lífs. Sá og brenndur var af páfanum Sextó í Róm. Í söngvísur snúin anno 1672

Ábyrgð

Þýðandi : Guðmundur Ólafsson

Efnisorð
2.1 (47r-48r)
Þú lífsins ljóminn skæri
Titill í handriti

Fyrsti sálmur. Tón: Konung Davíð sem kenndi

Upphaf

Þú lífsins ljóminn skæri …

Lagboði

Konung Davíð sem kenndi

Athugasemd

8 erindi.

Efnisorð
2.2 (48r-49r)
Guðdómsins ljóma góðgirni
Titill í handriti

II. sálmur. Miskunna mér Guð eftir mikillri miskunnsemi þinni. Tón: Skaparinn stjarna, herra hreinn

Upphaf

Guðdómsins ljóma góðgirni / grunlaus af náð og elskunni …

Lagboði

Skaparinn stjarna, herra hreinn

Athugasemd

16 erindi.

Efnisorð
2.3 (49r-50r)
Ó, Guð minn herra, aumka mig
Titill í handriti

III. sálmur. Og eftir mikilleik miskunnsemda þinna afmá þú mitt ranglæti. Tón: Allt mitt ráð til Guðs eg set etc.

Upphaf

Ó, Guð minn herra, aumka mig / elskunnar gnægð þín mæði þig …

Lagboði

Allt mitt ráð til Guðs eg set

Athugasemd

12 erindi.

Efnisorð
2.4 (50r-51r)
Þvoðu mig vel, minn herra
Titill í handriti

IV. sálmur. Þvoðu mig vel minn Guð af ranglæti mínu og af synd minni hreinsa þú mig. Tón: Guði lof skalt, önd mín, inna

Upphaf

Þvoðu mig vel, minn herra, / mínu ranglæti öllu af …

Lagboði

Guði lof skalt, önd mín, inna

Athugasemd

6 erindi.

Efnisorð
2.5 (51r-v)
Enn kem eg fyrir auglit þitt
Titill í handriti

V. sálmur. Því eg meðkenni ranglæti og minn glæpur er jafnan mér fyrir augum. Tón: Herra Guð í himnaríki

Upphaf

Enn kem eg fyrir auglit þitt / ó, Guð, í hátigninni …

Lagboði

Herra Guð í himnaríki

Athugasemd

16 erindi.

Efnisorð
2.6 (51v-52v)
Eg hefi brotið, herra, þér móti
Titill í handriti

VI. sálmur. Þér einum hefi eg á móti brotið og illa breytt fyrir þér, svo þú réttferðugur sért í þínum orðum og hreinn fundinn þá þú dæmist. Tón: Tak af oss, faðir, of þunga reiði

Upphaf

Eg hefi brotið, herra, þér móti …

Lagboði

Tak af oss, faðir, of þunga reiði

Athugasemd

12 erindi.

Efnisorð
2.7 (52v-53v)
Ó, faðir, faðir, faðir hýr
Titill í handriti

VII. sálmur. Sjá eg em af syndsamlegu sæði getinn og í syndinni hefur mín móðir við mér tekið. Tón: Faðir vor sem á himnum ert etc.

Upphaf

Ó, faðir, faðir, faðir hýr, / faðir, faðir, minn Guð í hæð sem býr …

Lagboði

Faðir vor sem á himnum ert

Athugasemd

12 erindi.

Efnisorð
2.8 (53v-54v)
Sjáðu, Guð minn, sannleikurinn
Titill í handriti

VIII. sálmur. Sjá, þú elskar sannleikann sem hulinn liggur. Þú lést mig vita þinn heimuglegan vísdóm. Tón: Ó, Jesú, þér æ viljum vér

Upphaf

Sjáðu, Guð minn, sannleikurinn / segist þér allkær vera …

Lagboði

Ó, Jesú, þér æ viljum vér

Athugasemd

12 erindi.

Efnisorð
2.9 (54v-55v)
Ó, faðir minn, ó, faðir minn, ástökktu mig
Titill í handriti

IX. sálmur. Stökkva mig, drottinn, þínu ísópu svo eg hreinn verði. Þvo mig svo eg snjóhvítur verði. Tón: Heiminn vor Guð, heiminn vor Guð

Upphaf

Ó, faðir minn, ó, faðir minn, / ástökktu mig, náð elskulig …

Lagboði

Heiminn vor Guð

Athugasemd

12 erindi.

Efnisorð
2.10 (55v-56r)
Hneigðu þitt elsku eyra
Titill í handriti

X. sálmur. Láttu mig fá að heyra fögnuð og gleði, svo þau beinin glaðvær verði sem þú hefur svo í sundur kramið. Tón: Einn herra eg best ætti etc.

Upphaf

Hneigðu þitt elsku eyra, / eilífi Guð, að mér …

Lagboði

Einn herra eg best ætti

Athugasemd

9 erindi.

Efnisorð
2.11 (56r-57r)
Ó, Guð, einasta athvarf mitt
Titill í handriti

XI. sálmur. Burtu snúðu þínu andliti frá syndum mínum, og afmáðu allar mínar misgjörðir. Tón: Hlífð og náð veit mér etc.

Upphaf

Ó, Guð, einasta athvarf mitt / auglitið ekki láttu þitt …

Lagboði

Hlífð og náð veit mér

Athugasemd

12 erindi.

Efnisorð
2.12 (57r-v)
Heilagi drottinn, hjartað skapa hreint í mér
Titill í handriti

XII. sálmur. Hreint hjarta skapaðu Guð í mér og gef mér hughraustan anda. Tón: Allra Jesú endurlausn etc.

Upphaf

Heilagi drottinn, hjartað skapa hreint í mér / hughraustum anda auðga gjör …

Lagboði

Allra Jesú endurlausn

Athugasemd

20 erindi.

Efnisorð
2.13 (58r-59r)
Andvarpan mína eg fram ber
Titill í handriti

XIII. sálmur. Kasta mér ekki í burt frá þínu augliti og tak ei þinn heilaga anda frá mér. Tón: Guð miskunni nú öllum oss etc.

Upphaf

Andvarpan mína eg fram ber / í Jesú náðarflóði …

Lagboði

Guð miskunni nú öllum oss

Athugasemd

11 erindi.

Efnisorð
2.14 (59r-60r)
Miskunnarfaðir mildasti
Titill í handriti

XIV. sálmur. Láttu mig fá að heyra fögnuð þíns hjálpræðis, og þinn máttarandi styrki mig. Tón: Til þín, heilagi herra Guð etc.

Upphaf

Miskunnarfaðir mildasti / mín von og traustið þýða …

Lagboði

Til þín, heilagi herra Guð

Athugasemd

11 erindi.

Efnisorð
2.15 (60r-v)
Sem nú, herra, þitt hjálparráð
Titill í handriti

XV. sálmur. Ómildum vil eg kenna þína vegu svo þeir ranglátu snúist til þín. Tón: Heiðrum vér Guð af hug og sál etc.

Upphaf

Sem nú, herra, þitt hjálparráð / hefur mig glatt með sinni náð …

Lagboði

Heiðrum vér Guð af hug og sál

Athugasemd

7 erindi.

Efnisorð
2.16 (60v-61r)
Græði mitt synda sáð
Titill í handriti

XVI. sálmur. Frelsa mig frá þeirri blóðskuldu, Guð, þú sem ert Guð míns hjálpræðis, svo mín tunga kunngjöri þitt réttlæti. Tón: Ó, Jesú elsku hreinn etc.

Upphaf

Græði mitt synda sáð / þín sætleikselskan tjáð …

Lagboði

Ó, Jesú elsku hreinn

Athugasemd

15 erindi.

Efnisorð
2.17 (61r-v)
Uppljúktu, drottinn, mínum munn
Titill í handriti

XVII. sálmur. Drottinn, uppljúktu vörum mínum svo að munnur minn megi boða lof þitt. Tón: Hjartans langan hef eg til þín etc.

Upphaf

Uppljúktu, drottinn, mínum munn / sælunot Sebaoth …

Lagboði

Hjartans langan hef eg til þín

Athugasemd

12 erindi.

Efnisorð
2.18 (62r)
Drottinn Guð, hæsta hátign þín
Titill í handriti

XVIII. sálmur. Því þú hefur öngva vild til offurs annars mundi eg gefa þér það og brenniofrið þóknast þér ekki. Tón: Kristi, þú klári dagur ert etc.

Upphaf

Drottinn Guð, hæsta hátign þín / heyri nú bænarorðin mín …

Lagboði

Kristi, þú klári dagur ert

Athugasemd

8 erindi.

Efnisorð
2.19 (62r-63r)
Ó, herra Guð, sem huggun hér
Titill í handriti

XIX. sálmur. Það offrið sem Guði þóknast er harmþrunginn andi. Eitt sundurmarið hjarta muntu Guð ei fyrirlíta. Tón: Jesú Kristi, þig kalla eg á

Upphaf

Ó, herra Guð, sem huggun lér / hvörjum sem mætir grandi …

Lagboði

Jesú Kristi, þig kalla eg á

Athugasemd

6 erindi.

Efnisorð
2.20 (63r-v)
Fyrir þitt auglit enn kem eg
Titill í handriti

XX. sálmur. Gjörðu vel við sjón eftir þinni góðfýsi. Uppbyggðu múrana Jerúsalem. Tón: Jesús Kristus á krossi var etc.

Upphaf

Fyrir þitt auglit enn kem eg / eilífa hátign, guðdómleg …

Lagboði

Jesús Kristus á krossi var

Athugasemd

10 erindi.

Efnisorð
2.21 (63v-64r)
Hæsti Guð sem í hátign býr
Titill í handriti

XXI. sálmur. Þá mun þér þóknast offur réttlætisins, brennioffur og aðrar fórnir, þá munu þeir uxum offra yfir þínu altari. Tón: Má eg ólukkum móti stá etc.

Upphaf

Hæsti Guð sem í hátign býr, / minn herra hýr …

Lagboði

Má eg ólukkum móti stá

Athugasemd

8 erindi.

Efnisorð
2.22 (64r-65v)
Drottinn minn, herra hýri
Titill í handriti

XXII. sálmur. Ein gömul ágæt bæn um syndanna fyrirgefning. Tón: Kært lof Guðs kristni etc.

Upphaf

Drottinn minn, herra hýri, / á hæstum tignarstól …

Lagboði

Kært lof Guðs kristni altíð

Athugasemd

15 erindi.

Efnisorð
3 (65v-68v)
Gleð þig, mín sála, Guðs í náð
Titill í handriti

Bænarorð af ritningunni samanlesin undir nafni ehruverðugrar jómfrúr Guðrúnar Oddsdóttur og að hennar forlagi uppá ljóðmæli sett. Undir þeim nótum: Eilíft lífið er æskilegt etc.

Upphaf

Gleð þig, mín sála, Guðs í náð / já, gleðst af hjartans rót …

Lagboði

Eilíft lífið er æskilegt

Athugasemd

12 erindi.

Tilvísanir í Biblíuna á spássíum.

Efnisorð
4 (68v-70r)
Græðari manna, Guðsson kær
Titill í handriti

Önnur bænarandvarpan undir nafni göfugrar og guðelskandi höfðingsjómfrúr Guðrúnar Oddsdóttur. Tón: Kom skapari, heilagi andi

Upphaf

Græðari manna, Guðsson kær, / gættu mín vel um þennan dag …

Lagboði

Kom skapari, heilagi andi

Athugasemd

17 erindi.

Efnisorð
5 (70r-71v)
Það er ágætt að þakka vel
Titill í handriti

Einn fagur nýárssöngur. Með tón: Guð oss lærdóm sinn ljósan

Upphaf

Það er ágætt að þakka vel / þér, Guð, sem geymir Ísrael …

Lagboði

Guð oss lærdóm sinn ljósan gaf

Athugasemd

17 erindi númeruð.

Efnisorð
6 (71v-73v)
Einn Guð skóp allt upphafi í
Titill í handriti

Eitt andlegt sigurverk eður sálmur uppá 12 dagsstundir. Tón: Vor herra Jesús vissi það etc.

Upphaf

Einn Guð skóp allt upphafi í, / einn almáttur hans veldur því …

Lagboði

Vor herra Jesús vissi það

Athugasemd

Vantar aftan af. Hér eru 11 erindi og 3 vísuorð þess 12.

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír.
Blaðfjöldi
ii + 73 + ii.
Tölusetning blaða
Seinni tíma blaðmerking með blýanti á neðri spássíu fyrir miðju.
Umbrot

  • Eindálka.
  • Griporð.

Ástand

Blöð hafa glatast að framan og aftan.

Blöð hafa víða verið styrkt með pappír.

Skrifarar og skrift
Ein hönd.

Kansellíbrotaskrift.

Skreytingar

Fyrirsagnir víðar flúraðar og upphafsstafir bæði flúraðir og blekfylltir.

Dálítið flúr undir griporðum.

Uppruni og ferill

Uppruni
Handritið var skrifað á Vestfjörðum, líklega í Holti í Önundarfirði eða Vigur 1691 (Handritaskrá III:59).
Ferill

Á bl. 35v mótar fyrir nafninu Ch … Magnúsdóttir. E.t.v. er þetta Kristín dóttir Magnúsar Jónssonar í Vigur.

Jón Árnason fékk handritið hjá Þorvaldi Sívertsen í Hrappsey.

Aðföng

ÍB 238-286 8vo kom frá Jóni Borgfirðingi.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

GI lagfærði 20. október 2016.

Þórunn Sigurðardóttir og Johnny Lindholm skráðu í apríl og maí 2011 og janúar 2012.

Lýsigögn