Skráningarfærsla handrits

ÍB 196 8vo

Kvæðatíningur og eyktamörk ; Ísland, 1800-1850

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1
Brot úr kvæðasafni síra Magnúsar Ólafssonar í Bjarnanesi
Titill í handriti

Fáeinar og snotrar andlegar söngvísur sálunni til gleði á jólum og nýári samt erfiljóð og grafminningar yrktar af síra Magnúsi Ólafssyni.

Athugasemd

20 blöð með hendi síra Sigurðar Jónssonar á Rafnseyri.

3
Eyktamörk íslensk
Titill í handriti

Horologium Islandicum eða Eyktamörk íslensk.

Athugasemd

Með eyktahring.

Tekið úr handriti. Blaðsíðutal 315-40.

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír.

Blaðfjöldi
20 + 36 blöð. Margvíslegt brot.
Skrifarar og skrift
Ýmsar hendur. Þekktir skrifarar:

Sigurður Jónsson

Jón Sigurðsson

Uppruni og ferill

Uppruni
Íslandá öndverðri 19. öld.
Ferill

Á einu blaði stendur: Þessi blöð á yngis stúlkan Vilborg Matthíasdóttir á Stapa annó 1858 dag mánaðar 18 settinber það vottar Meyvant Jónsson.

Á einu blaði stendur: Þessi blöð á Guðbjörg Magnúsdóttir á Stapa! Miðskeri 8 apríl 1855.

ÍB 195-9 8vo frá Guðmundi Guðmundssyni í Miðskeri 1861.

Aðföng

Landsbókasafn keypti árið 1901 handritasafn Hins íslenska bókmenntafélags, Kaupmannahafnardeildar (ÍB) og Reykjavíkurdeildar (ÍBR).

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

Skráning Páls Eggerts Ólasonar á handritinu er aðgengileg í ritinu Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins, 3. bindi, bls. 47-48.

Guðrún Laufey Guðmundsdóttir frumskráði, 5. nóvember 2018.

Notaskrá

Titill: Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins
Ritstjóri / Útgefandi: Páll Eggert Ólason
Umfang: I-III
Lýsigögn
×

Lýsigögn