„Rímur af Haraldi Hringsbana kveðnar af Árna Böðvarssyni“
„Haukur óma hraði för / Herjans út af rönnum …“
„Skrifað á Hvallátrum sautjánda ágúst 1850 af Einari Jónssyni.“
12 rímur
„Skipafregn, ort af Árna Böðvarssyni“
„Vorið langt / verður oft dónunum …“
„Hrakfallabálkur ortur af presti séra Bjarna Gissurssyni á Múla í Skriðdal.“
„Hjöluðu tveir í húsi forðum …“
„Lakakvæði ort af Guðmundi Bergþórssyni“
„Hér er sagan harmakauna / hvað Þorláki bar til rauna …“
ÍB 190-2 8vo frá Þorláki Ólafssyni 1860.
Landsbókasafn keypti árið 1901 handritasafn Hins íslenska bókmenntafélags, Kaupmannahafnardeildar (ÍB) og Reykjavíkurdeildar (ÍBR).
Skráning Páls Eggerts Ólasonar á handritinu er aðgengileg í ritinu Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins, 3. bindi, bls. 46.
Guðrún Laufey Guðmundsdóttir frumskráði, 2. nóvember 2018.