Skráningarfærsla handrits

ÍB 188 8vo

Samtíningur ; Ísland, 1700-1799

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1 (1r-34r)
Kingósálmar
Höfundur
Titill í handriti

Vikusálmar ásamt með 7 iðrunar sálmum Davíðs ortir fyrst á danska tungu af Thomas Kingo… Enn á íslensku útlagðir af sr. Stefáni Ólafssyni að Vallanesi.

Ábyrgð

Þýðandi : Stefán Ólafsson

Athugasemd

Aðeins sjöundi iðrunarsálmur er skrifaður á bl 33v - 34v, á eftir fylgja auð blöð 34r - 35r.

2 (36r-55v)
Barna physica
Titill í handriti

Barna physica eður ein lítil vísbending fyrir börn og ungmenni … Er þessi bæklingur fyrst skrifaður í frönsku af einum prófessor í París að heiti Carol Rollin … Þetta litla skrif er útlagt í þýsku af … D. Johann Albert Fabricus … er hann gjört hefur yfir eina þýska útleggingu þeirrar engelsku bókar er kallast Physico Tehologie… hverrar auctor er sá englenski Canonicus í Windsor William Derham.

Athugasemd

Upphafið er uppskrift með hendi Sigurðar Magnússonar i Holtum, niðurlagið með nokkuru eldri hendi.

3 (55Br-86r)
Catonis disticha og spakmæli 7 Grikkjaspekinga ásamt Hugsvinnsmálum
Athugasemd

Catonis disticha og spakmæli 7 Grikkjaspekinga ásamt Hugsvinnsmálum síra Jóns Bjarnasonar.

Þessi hluti er innfestur skakkt.

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír.

Blaðfjöldi
84 blöð (160 mm x 102 mm).
Skrifarar og skrift
Ýmsar hendur. Ein þekkt hönd, skrifari:

Sigurður Magnússon

Uppruni og ferill

Uppruni
Ísland, átjánda öld.
Ferill

ÍB 188-9 8vo frá Sigurði Sigurðssyni á Dallandi 1860.

Aðföng

Landsbókasafn keypti árið 1901 handritasafn Hins íslenska bókmenntafélags, Kaupmannahafnardeildar (ÍB) og Reykjavíkurdeildar (ÍBR).

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

Skráning Páls Eggerts Ólasonar á handritinu er aðgengileg í ritinu Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins, 3. bindi, bls. 46.

Guðrún Laufey Guðmundsdóttir frumskráði, 1. nóvember 2018.

Notaskrá

Titill: Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins
Ritstjóri / Útgefandi: Páll Eggert Ólason
Umfang: I-III
Lýsigögn
×

Lýsigögn