Skírnir. Tímarit bókmenntafélagsins. VIII. s. 77.
Ættartala Skúla Illugasonar
Pappír.
Gjöf frá Sigfúsi sýslumanni Skúlasyni 1855, og hefir hann sjálfur aftan við greint eiginhendi ætt sína til síra Skúla svo: „Síra Skúli þessi á Seilu var faðir Síra Thomasar á (!) Saurbæ og Grenjaðarstöðum, föður Síra Skúla í Múla, föður Sigfúsar sýslumanns, er Danir öpuðu á dönsku sögninni "skule" og rángnefndi sig því "Schulesen" af ungæðis og ærustolti í fyrstu, en seinna þrái.“ Veitir þetta góða skýring á því ættarnafni