Skráningarfærsla handrits

Einkaeign 8

Kvæðabók ; Ísland, 1833-1835

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1 (1r)
Jólavers
Titill í handriti

Eitt jólavers með tón: Eitt nú er útrunnið lífsins ár

Upphaf

Heilög jól, höldum í nafni Krists …

Lagboði

Eitt nú er útrunnið lífsins ár

Niðurlag

… hann fæddist, hann fæddist oss / frelsarinn Jesús. Amen.

2 (1r)
Nýársvers
Titill í handriti

Eitt nýársvers með tón: Eilíft lífið er æskilegt er

Upphaf

Árið fagnaðar oss þú gef …

Lagboði

Eilíft lífið er æskilegt

Niðurlag

… sældar ár deyjendum. Amen.

3 (1v-6r)
Sálmur
Titill í handriti

Einn sálmur. Með tón: Eilíft lífið er æskilegt

Upphaf

Guð gefi oss öllum góða nótt …

Lagboði

Eilíft lífið er æskilegt

Niðurlag

… ó, drottinn, lofi þig. Amen.

4 (6v-8v)
Sálmur
Titill í handriti

Ein lítil söngvísa til upphvatningar og yfirbótar á þessum háskasamlega tíma. Með tón: Heyr þú til heimsins

Upphaf

Miskunnar faðirinn mildi …

Lagboði

Heyr þú til heimsins

Niðurlag

… eilíft fagnaðar ár.

Skrifaraklausa

Sálmabók svo skal enda / vér syngjum Guði lof / að oss réði aumum senda / andlega lærdóms gjöf / iðkum slíkt oft og tíðum / af huga svo himnum á / syngjum með sigri fríðum / sætasta halelújá. Amen. Filippus Jónsson á (bl. 8v).

Efnisorð
5 (9r-11v)
Huggunarkvæði
Titill í handriti

Ein fögur eftirlíking fyrir þá sem missa sína ástvini. Með tón: Ó, þú eilífi Guð

Upphaf

Ó, þú óþyrmið haf …

Lagboði

Ó, þú eilífi Guð

Niðurlag

… Guð láti oss oss ætíð gá að því. Amen.

6 (12r-13r)
Sálmur
Titill í handriti

Annar sálmur um sálarinnar ástríðendur

Upphaf

Mörg vill hryggja hugann pín …

Niðurlag

… fyrir utan rýrð er amen.

Skrifaraklausa

Anno 1835 (bl. 13r).

Efnisorð
7 (13r)
Sálmvers
Titill í handriti

Eitt vers með tón: Mikilli farsæld mætir sá

Upphaf

Pundið er stórt þess minnast má …

Lagboði

Mikilli farsæld mætir sá

Niðurlag

… eflaust hér liggja vann. Amen.

Efnisorð
8 (13v)
Sálmvers
Titill í handriti

Annað vers. Með tón: Eilíft lífið er æskilegt

Upphaf

Mín stundleg ævi þegar þver …

Lagboði

Eilíft lífið er æskilegt

Niðurlag

… og ódauðleikans vellyst. Amen.

Efnisorð
9 (13v-16r)
Sálmur
Titill í handriti

Einn ágætur sálmur. Tón: Hvað skal oss angra hér

Upphaf

Ó, gæskunnar ljúfust lind …

Lagboði

Hvað skal oss angra hér

Niðurlag

… að bæta minn hjartans kvíða. Amen.

Efnisorð
10 (16r-v)
Sálmur
Titill í handriti

Sálmur Stefáns Hallkelssonar. Tón: Sæll Jesú sæti

Upphaf

Til þín trúfasti tryggða vinur …

Lagboði

Sæll Jesú sæti

Niðurlag

… gloría tibi Jesús. Amen.

Athugasemd

Upphafsstafirnir PJS (Filippus Jónsson) eru skrifaðir inn í upphafsstaf síðasta erindis, sem er H (bl. 16v).

Efnisorð
11 (17r-18r)
Kvæði
Upphaf

… augsýn í …

Niðurlag

… fræðið ent eg get. Endirinn.

Skrifaraklausa

Párað anno 1833 af P.J.S. (bl. 18r).

Athugasemd

Vantar framan af. Hefst í miðju 18. erindi af 25.

12 (18r-22v)
Sjóhrakningssálmur
Titill í handriti

Einn sjóhrakningssálmur með tón: Annar ræninginn ræddi

Upphaf

Eilífur allsvaldandi …

Lagboði

Annar ræninginn ræddi

Niðurlag

… lofið Guð eilíf ár. Amen. Amen.

Efnisorð
13 (22v)
Sálmvers
Titill í handriti

Eitt vers með lag: Ó, Guð, vor faðir, sem í himnaríki ert

Upphaf

Rakinn? blóðferil hefi eg …

Lagboði

Ó, Guð, vor faðir, sem í himnaríki ert

Niðurlag

… leið þú mig þegar lífið þver.

Efnisorð
14 (23r)
Sálmvers
Titill í handriti

Eitt vers með lag: Faðir vor sem á himnum ert

Upphaf

Gef þú, drottinn, oss góða nótt …

Lagboði

Faðir vor sem á himnum ert

Niðurlag

… gef þú oss farsæla dauðastund. Amen.

15 (23r)
Sálmvers
Titill í handriti

Annað vers með lag: Óvinnanleg borg er vor Guð

Upphaf

Jesús í blíðan blóðfaðm þinn …

Lagboði

Óvinnanleg borg er vor Guð

Niðurlag

… skært ljós þitt lát mér skína. Amen.

Efnisorð
16 (23v)
Sálmvers
Titill í handriti

Þriðja vers með lag: Eiflíft lífið er æskilegt

Upphaf

Gefi oss drottinn góða nótt …

Lagboði

Eiflíft lífið er æskilegt

Niðurlag

… farsælust eilíf ró. Amen.

17 (23v)
Sálmvers
Titill í handriti

Fjórða vers með lag: Jesús Kristur að Jórdan kom

Upphaf

Gleym minni synd og gef mér náð …

Lagboði

Jesús Kristur að Jórdan kom

Niðurlag

… amen, ó, drottinn mæti. Amen.

Efnisorð
18 (23v)
Sálmvers
Titill í handriti

Fimmta vers með lag: Annar ræninginn ræddi

Upphaf

Ó, Jesú Guðs son góði …

Lagboði

Annar ræninginn ræddi

Niðurlag

… kyrtli réttlætis þín. Amen.

Efnisorð
19 (24r-25v)
Sálmur
Titill í handriti

Einn góður sálmur. Tón: Hjartað þankar hugur sinni

Upphaf

Hvenær viltu héðan kalla …

Lagboði

Hjartað þankar hugur sinni

Niðurlag

… eilíflegar þakkir segja. Amen.

Efnisorð
20 (25v-26v)
Sálmur
Titill í handriti

Annar sálmur. Með sínum tón.

Upphaf

Anda þinn, Guð, mér gef þú víst …

Niðurlag

… um aldir ríki og æra. Amen.

Skrifaraklausa

Anno 1834. PJSA (bl. 26v).

Efnisorð
21 (26v)
Bergmál
Titill í handriti

Dverg-mál

Upphaf

Mun Guð marga til dóms kalla — alla …

Niðurlag

… Guð gefi að vér sjáum þá menn — Amen.

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír.
Blaðfjöldi
i + 26 + i blöð í octavo-broti (167 mm x 112 mm).
Tölusetning blaða

Blöð handritsins eru ótölusett.

Kveraskipan

  • Kver I: bl. 1-8, 4 tvinn.
  • Kver II: bl. 9-16, 4 tvinn.
  • Kver III: bl. 17-18, 1 tvinn.
  • Kver IV: bl. 19-26, 4 tvinn.

Hugsanlegt er að kver II eigi heima aftast í handritinu (sbr. bl. 13r, þar sem ritunarár er 1835).

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca 150-158 mm x 80-90 mm.
  • Línufjöldi er ca 20-29.
  • Griporð sums staðar, e.t.v. með annarri hendi.
  • Lokaerindi endar í totu á bl. 6r.

Ástand

  • Blöðin eru notkunarnúin, sérstaklega á útsniði.
  • Tvö fremstu kverin eru laus úr bandi.
  • Saurblöðin eru trosnuð og götótt, einkum fremra blaðið.

Skrifarar og skrift

Að mestu leyti með hendi Filippusar Jónssonar (sbr. bl. 18r), snarhönd.

Skreytingar

Pennaflúraðir upphafsstafir bl. 1v (G), 6v (M), 9r (O), 11v (Þ), 12r (M, L, H, V, V, H, Þ, O, J), 13r (Þ), 15v (Þ), 16r (T), 16v (H), 18r (E), 22v (H), 23v (G, G, O), 24r (H), 25v (A).

Lítill skrautbekkur með Anno fyrir framan og ártalið 1835 fyrir aftan á bl. 13r.

Annar skrautbekkur á bl. 23v.

Lítil pennateikning af plöntu milli kvæða á bl. 13v og önnur við skrautbekkin á bl. 13r.

Fyrirsögn kvæðis er með stærra letri og lítillega pennaflúrað (bl. 18r, 24r, 25v.

Band

Band líklega frá ritunartíma eða nokkru síðar (173 mm x 95 mm x 11 mm).

Kver eru saumuð á þrjá hamptauma sem festir eru í þunn tréspjöld klæddum bókfelli með blindþrykktu blóma- og rammamunstri. Bókfellið, sem er brúnlitað að utanverðu, er snjáð.

Fremst og aftast eru sendibréf sem þjóna sem spjaldblöð og saurblöð, þ.e. eru að hálfu límd innan á kápu. Undir annað þeirra (fremra saurblað) skrifar Einar Guðmundsson undir hitt (aftara saurblað) Guðmundur Eiríksson og er það ársett 1834. Á því kemur fyrir bæjarnafnið Hamarsholt, en bær með því nafni var í Skeiða- og Gnúpverjahreppi í Árnessýslu en fór í eyði 1875. Fyrra bréfið er stílað á Mr. Guðmund á Íslandi. Föðurnafnið er trúlega á þeirri hlið sem snýr að spjaldi.

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið var skrifað á Íslandi á fyrri hluta 19. aldar, líklega í Árnessýslu á árunum 1833-1835 (sbr. bl. 13r, 18r, 26v).

Ferill

Handritið er í eigu Vals Gunnarssonar, Akranesi, sem fékk það að gjöf frá Sigríði Beinteinsdóttur (1912-2008), systur Sveinbjörns Beinteinssonar allsherjargoða.

Sigríður fæddist í Grafardal en bjó síðar á Hávarsstöðum í Melasveit en lést á Akranesi.

Filippus Jónsson, sem líklega er skrifari handritsins, er fyrsti eigandi þess, en nafn hans kemur fyrir á bl. 8v og upphafsstafir á bl. 17v, 18r, 26v.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill
ÞS skráði 16.-18. febrúar 2009.
Viðgerðarsaga
Handritið var í láni hjá Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum frá júlí 2007 til 2010.
Myndir af handritinu
Stafrænar ljósmyndir á Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Ljósmyndari Jóhanna Ólafsdóttir.

Notaskrá

Höfundur: Hallgrímur Pétursson
Titill: Ljóðmæli 4
Ritstjóri / Útgefandi: Margrét Eggertsdóttir, Svanhildur Óskarsdóttir, Þórunn Sigurðardóttir
Lýsigögn
×

Lýsigögn