„Með því kongl maj. commissarius Árni Magnússon okkur tilskyldar, í ljósi að láta það við frekast vitum og fornumið höfum, um þau gömul skjöl, dóma og samþykktir, er þessu pássi Vestmannaeyjum við víki …“
Vitnisburðarbréf þar sem undirritaðir, Sigurður Sölmundsson og Clemus Jónsson, svara beiðni Árna Magnússonar um hvort þeir viti hvar gömul skjöl sem viðvíkja Vestmannaeyjum sé að finna. Þeir segja að ekkert slíkt hafi sést síðan umboðsmaðurinn Peder Vibe yfirgaf eyjarnar 1693. Dagsett 31. maí 1704. Með fylgja tveir seðlar (tvíblöðungur og stakt blað) ritaðir af Árna Magnússyni þar sem hann kemur með frekari upplýsingar um málið á dönsku, segist m.a. hafa talað við Peder Vibe í Kaupmannahöfn.
Óþekktur skrifari, fljótaskrift.
Umbúðir og askja frá 1997 eða fyrr.