„Þessi er umkvörtun Brynjúlfs Magnússonar húsmanns í Þorgerðarhjalli, er hann framsagði fyrir kongelig majestets commissarium Árna Magnússyni oss undirskrifuðum nærverendum …“
Vitnisburðarbréf þar sem Brynjólfur Magnússon kvartar til Árna Magnússonar um að umboðsmaðurinn Niels Riegelsen meini honum að nýta jörðina Kirkjubæ andstætt samkomulagi við fyrrverandi umboðsmann, Hans Christiansson Rafn. Ritað í Vestmannaeyjum 31. maí 1704. Vottar eru Þórður Þórðarson og Magnús Erlingsson og þá votta Magnús, Sigurður Sölmundsson ogClemus Jónsson að Brynjólfur hafi forsvaranlega hirt um jörðina.
Sennilega hönd Þórðar Þórðarsonar, fljótaskrift.
Umbúðir og askja frá 1997 eða fyrr.