Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM Dipl. Isl. Fasc. LXXVI,E,I-II

Fimm skjöl er varða Henrik Gerkens

Tungumál textans
íslenska (aðal); þýska; danska

Innihald

1 (1r-2v)
Fimm skjöl er varða Henrik Gerkens
Efnisorð
1.1 (1r)
LXXVI,E,I,1. Dómur um kærur Henriks Gerkens á hendur Þorsteini Torfasyni
Upphaf

Öllum mönnum þeim sem þetta bréf sjá eður heyra senda Oddur Túmasson, Ormur Jónsson, Jón Grímsson, Þórður Guðmundsson og Bjarni Einarsson lögréttumenn …

Notaskrá

Íslenzkt fornbréfasafn XIII, nr. 494, bls. 651-653.

Athugasemd

Afrit af dómi um kærur Henriks Gerkens á hendur Þorsteini Torfasyni, dags. 15. september 1561.

Með fylgir uppskrift í áttablaðabroti með hendi Hans Beckers, merkt „ad LXXVI.E.“

Efnisorð
1.2 (1v)
LXXVI,E,I,2. Tylftardómur
Upphaf

Öllum mönnum þeim sem þetta bréf sjá eður heyra senda Arngrímur Jónsson, Jón Ormsson, Erlindur Jónsson, Magnús Gunnsteinsson, Jón Sigurðsson …

Notaskrá

Íslenzkt fornbréfasafn XIV, nr. 452, bls. 634-635.

Athugasemd

Afrit af tylftardómi sem dæmir löglegt kaup Henriks Gerkens á hálfu Svignaskarði og Sigmundarnesi, dags. 30. júní 1567.

Með fylgir uppskrift í áttablaðabroti með hendi Hans Beckers, merkt „ad LXXVI.E.“

Efnisorð
1.3 (1v)
LXXVI,E,I,3. Vitnisburður
Upphaf

Hér eftir kemur það bréf sem herra Páll Stígsson gaf Henrik Gerkens Hannessyni og vitnisburðarbréf sem Þórður bóndi Guðmundsson honum gaf …

Notaskrá
Athugasemd

Afrit af vitnisburði Þórðar Guðmundssonar um hegðan Henriks Gerkens, dags. 9. ágúst 1567.

1.4 (2r)
LXXVI,E,I,4. Leyfisbréf
Upphaf

Jeg, Povel Stigsen, kong. mattz befalingsmand over Island, gjør alle vitterligt med dette mit åbne brev, at jeg på højbemeldte kong. mattz …

Notaskrá

Íslenzkt fornbréfasafn XIII, nr. 543, bls. 730-731.

Athugasemd

Afrit af bréfi þar sem Páll Stígsson hirðstjóri leyfir Henrik Gerkens bólfestu á Íslandi ævilangt, dags. 12. maí 1562.

Með fylgir uppskrift í áttablaðabroti með hendi Hans Beckers, merkt „ad LXXVI.E.“

Neðst á 2r er ritað með fjólubláum blýanti, sennilega af Guðmundi Þorlákssyni: „NB. Þetta bréfið hefur efl. verið skr. fyrst. (G.Þ.)“

Efnisorð
1.5 (2v)
LXXVI,E,I,5. Vitnisburður
Upphaf

Vor alless weme denn disser breff tho sehe. horen oder lesenn werdt vorkamen wat standes. Condition oder wesens de sin. don kundt vnn bekennen wir burgemeistere vnn Radtmanne der stadt Hamburg …

Notaskrá

Íslenzkt fornbréfasafn XV, nr. 53, bls. 64-65.

Athugasemd

Afrit af vitnisburði borgmeistara og ráðmanna Hamborgar um Henrik Gerkens, dags. 8. febrúar 1568.

Neðst á 2v er ritað með samtíða hendi: „Þetta er[u] útskriftir af þeim bréfum sem Henrik Gerkens [H]anssonar til ke[mur].“

Með fylgir uppskrift í áttablaðabroti með hendi Hans Beckers, merkt „ad LXXVI.E.“

2 (1r-2v)
Fimm skjöl er varða inventarium Þingeyraklausturs.
Efnisorð
2.1 (1r)
LXXVI,E,II,1. Skipun um sölu á klausturvarningi
Upphaf

Der kong M: zw Denmarken meiner gnedigsten Hern vndwirdiger beuelsmahn offer Jslannth bekenne mit diesser offenen versiegeltem handskrifft …

Athugasemd

Afrit af bréfi þar sem Jóhann Bocholt skipar Jóni Jónssyni og Henrik Gerkens að selja varning (lat. inventario) Þingeyra- og Reynistaðaklaustur, dags. 1. júlí 1571.

Prentað eftir öðru afriti (AM apogr. 660) í Alþingisbókum Íslands I, bls. 93-94.

Efnisorð
2.2 (1r)
LXXVI,E,II,2. Vitnisburðarbréf
Upphaf

Það gjörum vér Þórarinn Gíslason, Gísli … Jón Filippusson, Gestur Þorkelsson og Stefán Guðmundsson góðum mönnum kunnugt að árum eftir guðs burð …

Athugasemd

Afrit af vitnisburði nokkurra manna sem votta að þeir hafi verið til kvaddir af Henrik Gerkens og verið viðstaddir og séð smjör rétt mælt á Þingeyrum, 29. mars 1577.

2.3 (1v)
LXXVI,E,II,3. Farmbréf
Upphaf

Það gjöri ég Henrik Stein kaupmaður Markus Hess borgmeistara í Kaupinhafn að ég hefi meðtekið af Henrik Gerkins Hannessyni af Þingeyraklausturs inventarium eftir skikkan …

Athugasemd

Afrit af bréfi frá Henrik Stein kaupmanni til Markus Hess, borgarmeistara í Kaupmannahöfn, um að hann hafi tekið við varningi úr Þingeyraklaustri, dags. 18. ágúst 1575.

2.4 (1v)
LXXVI,E,II,4. Kvittun
Upphaf

Jeg Johann Bucholt konglig majestatis befalningsmand over Island kiendis og gior for alle vidurligt meth thete obene bref …

Notaskrá

Íslenzkt fornbréfasafn XV, nr. 310, bls. 441-442.

Athugasemd

Afrit af bréfi þar sem Johann Bucholt (Johann Bockholt) kvittar Henrik Gerkens um afhending kvikfjár Þingeyraklausturs, dags. 27. september 1570.

Á eftir fylgir afrit af staðfestingu þriggja manna um að rétt hafi verið eftir frumbréfi skrifað, dags. 4. september 1607.

Efnisorð
2.5 (1v)
LXXVI,E,II,5. Vitnisburðarbréf
Upphaf

Það gjörum vér Jón Jónsson, Ari Erlendsson, Ólafur Þorkelsson, Gísli Brandsson, Illugi Túmasson og Jón Ólafsson góðum mönnum vitanlegt og vottum fyrir full sannindi …

Athugasemd

Afrit af bréfi þar sem sex menn staðfesta að þeir hafi verið tilkallaðir af Jóni Jónssyni lögmanni til að votta um rétt magn smjörs á Þingeyrum, dags. 17. desember 1577.

2.6 (2r)
LXXVI,E,II,6. Vitnisburðarbréf
Upphaf

Svofelldan vitnisburð ber ég Oddur Andrésson að ég afhenti vegna lögmannsins sáluga Jóns Jónssonar norður á Akureyri í Eyjafirði smjör og vaðmál uppá lest fiska þann tíma sem ég var í hans þjónustu hvörja fyrrskrifaða lest ég afhenti kaupmanninum Rasmus að nafni …

Athugasemd

Afrit af vitnisburði Odds Andréssonar um afdrif inventarium Þingeyraklausturs, dagsett 17. mars 1611.

Á eftir þessu bréfi kemur staðfesting um að öll fyrrskrifuð bréf séu rétt upp skrifuð, undirrituð af Steinþóri Gíslasyni, Gísla Jónssyni, Jóni Ólafssyni og Birni Jónssyni, dags. 11. apríl 1619.

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír með vatnsmerkjum.

  • Vatnsmerki 1: í vinnslu (IS5000-DIF-LXXVI-EI1-5), bl. 5. Stærð: 42 x 26 mm, fjarlægð á milli vatnslína á báðum megin vatnsmerkisins: 43 mm.

    Notað frá 1651 til 1700.

  • Vatnsmerki 2: í vinnslu (IS5000-DIF-LXXVI-EII1-6), bl. 6. Stærð: 51 x 52 mm, fjarlægð á milli vatnslína á báðum megin vatnsmerkisins: 54 mm.

    Notað í 1619.

Blaðfjöldi
Tveir tvíblöðungar í fólíóbroti (313-335 mm x 198-209 mm).
Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er breytilegur.
  • Línufjöldi er breytilegur.

Ástand
Einnig eru samtals 16 blöð í oktavóbroti (6+2+4+4, hver hluti tölusettur sérstaklega). Tvíblöðungarnir eru nokkuð útjaskaðir og skítugir, sérstaklega II-hlutinn þar sem viðgerð hefur haft þá aukaverkun að lýsa upp blek í samskeytum og gera það nær ólæsilegt.
Skrifarar og skrift
Sex hendur auk eiginhandaráritana.

I. E,I,1-3 (1r-1v): Óþekktur skrifari, léttiskrift.

II. E,I,4 (2r): Óþekktur skrifari, fljótaskrift.

III. E,I,5 (2v): Óþekktur skrifari, léttiskrift.

IV. E,II,1-5 (1r-2r): Óþekktur skrifari, léttiskrift.

V. E,I,5 (2r): Steinþór Gíslason, fljótaskrift.

VI. ad LXXVI,E,I: Hans Becker, fljótaskrift.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Fylgiseðill frá síðari hluta 20. aldar þar sem segir að LXXVI, E, I, 6 sé flutt yfir í LVI, 16, sem það sé uppskrift af, og vísað til Íslenzkt fornbréfasafns XV, bls. 137.

Band

Umbúðir og askja frá 1997 eða fyrr.

Uppruni og ferill

Uppruni
E,I var sennilega skrifað á Íslandi snemma á 17. öld. E,II var skrifað á Íslandi 11. apríl 1619. Skjöl merkt „ad LXXVI.E.“ voru sennilega skrifuð snemma á 18. öld.
Aðföng
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við skjalinu 27. nóvember 1996.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • BGÁ skráði samkvæmt reglum TEIP5 30. mars 2017. ÞÓS skráði 20. júlí 2020. EM uppfærði vatnsmerkin 13. júní 2023.

Myndir af handritinu

  • Svarthvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Titill:
Ritstjóri / Útgefandi: Páll Eggert Ólason
Umfang: 13
Titill:
Ritstjóri / Útgefandi: Páll Eggert Ólason
Umfang: 14
Titill:
Ritstjóri / Útgefandi: Páll Eggert Ólason
Umfang: 15

Lýsigögn