Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM Dipl. Isl. Fasc. LXXVI,I,4

Vitnisburðarbréf

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-2v)
Vitnisburðarbréf
Upphaf

Anno 1686 þann 21. maí að settu manntalsþingi að Heggstöðum í Andakíl af valdsmanninum Jón Sigurðssyni, lét hann auglýsa þá skriflega …

Athugasemd

Afrit af vitnisburðarbréfi nokkurra manna um að Klausturtunga teljist til Grjóteyrar og sé því með réttu eign Eyjólfs Jónssonar, dags. 21. maí 1686.

Jón Sigurðsson og Sigurður votta að rétt sé eftir frumbréfi skrifað, dags. 29. október 1705. Það gera einnig Þorsteinn Ketilsson og Hálfdan Helgason, dags. 22. júní 1707.

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír með vatnsmerkjum.

  • Aðalmerki 1: skjaldarmerki Amsterdam (IS5000-DIF-LXXVI-I4). Stærð: 124 x 115 mm, fjarlægð á milli vatnslína á báðum megin vatnsmerkisins: 134 mm.

    Notað frá 1705 til 1707.

    Sjá líka IS5000-DIF-LXXVI-I2.

  • Aðalmerki 2: skjaldarmerki (brot) (IS5000-DIF-LXXVI-I4frak).

    Notað frá 1705 til 1707.

Blaðfjöldi
2 blöð (tvíblöðungur) (214 mm x 165 mm). Síða 2v auð.
Umbrot

  • Eindálka.
  • Línufjöldi ca. 23.

Ástand
Ástand gott.
Skrifarar og skrift
Tvær hendur auk undirskrifta.

I (1r-2r): Óþekktur skrifari, fljótaskrift.

II (2r): Óþekktur skrifari, fljótaskrift.

Band

Umbúðir og askja frá 1997 eða fyrr.

Fylgigögn

Laus seðill með hendi Árna Magnússonar, með blýanti merktur „AM-seddel“, þar sem er ritað: „Best væri að kóngur seldi Grjóteyrar eigendum Klausturtungu.“ Aftan á seðlinum er texti sem hefur að hluta verið skorinn af og strikað yfir.

Uppruni og ferill

Uppruni
Skrifað á Íslandi, 1705-1707.
Aðföng
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við skjalinu 27. nóvember 1996.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • BGÁ skráði samkvæmt reglum TEIP5 3. maí 2017. ÞÓS skráði 23. júlí 2020. EM uppfærði vatnsmerkin 14. júní 2023.

Myndir af handritinu

  • Svarthvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Lýsigögn
×

Lýsigögn