„Dómar og skilríki um arf þann sem Einari Ólafssyni hafði fallið eftir Solveigu Björnsdóttur móðurmóður sína …“
Umrædd afskriftabók er sennilega Bps B I 13 (áður Bisk 3 fol.) og bréfin öll afrituð úr henni.
„Það gjörum vér, Ólafur Jónsson og Ólafur Hjaltason, prestar Hólabiskupsdæmis …“
Sex menn votta að bréfin sem á eftir fylgja séu rétt skrifuð eftir frumbréfum. Sama bréf og er prentað í Íslenzku fornbréfasafni VIII, nr. 469, bls. 611-612.
„Það gjöri ég, Jón prestur Þorvaldsson, heilagrar Hólakirkju officialis, góðum mönnum viturlegt, með þessu mínu opnu bréfi …“
Jón Þorvaldsson staðfestir að Ólafur Filippusson hafi svarið fyrir sér fullan bókareið um að hafa ekki saurgað kirkjugarðinn í Víðidalstungu með ofbeldisverki. Sama bréf og er prentað í Íslenzku fornbréfasafni VII, nr. 314, bls. 263-264.
„Vér, Stefán, með guðs náð, biskup í Skálholti og-cetera, gjörum góðum mönnum kunnugt, með þessu voru opnu bréfi …“
Stefán, biskup í Skálholti, úrskurðar hjónaband Ólafs Filippussonar og Vigdísar Jónsdóttur löglegt. Sama bréf og er prentað í Íslenzku fornbréfasafni VII, nr. 408, bls. 385-386.
„Þeim góðum mönnum sem þetta bréf sjá eður heyra, senda Sigurður Daðason, Jón Ólafsson, Sigurður Ívarsson, Ketill Teitsson, Bárður Jónsson, Brandur Ólafsson, lögréttumenn …“
Tylftardómur um arftöku Einar Ólafssonar eftir Solveigu Björnsdóttur móðurmóður sína, dags. 21. júní 1497. Sama bréf og er prentað í Íslenzku fornbréfasafni VII, nr. 383, bls. 349-354.
„Ég, Finnbogi Jónsson, lögmann norðan og vestan á Íslandi, gjöri það góðum mönnum viturlegt með þessu mínu opnu bréfi …“
Finnbogi Jónsson úrskurðar Bólstaðarhlíðardóm frá 21. júní 1497 löglegan (þ.e. dóminn sem er uppskrifaður í LXXVI,D3). Sama bréf og er prentað í Íslenzku fornbréfasafni VII, nr. 418, bls. 397-398.
„Það gjörum vér, Gunnsteinn prestur Ásgrímsson, Túmas Rafnsson, Helgi Sugurðsson og Jón Höskuldsson, leikmenn, góðum mönnum viturlegt, með þessu voru opnu bréfi …“
Kaupmálabréf Vigdísar Jónsdóttur og Ólafs Filippussonar, dags. 8. apríl 1496, en kaupmálinn var gerður 30. september 1492. Sama bréf og er prentað í Íslenzku fornbréfasafni VII, nr. 209, bls. 138-139.
„Það gjörum vér, bróðir Einar með guðs náð, ábóti á Munkaþverá, bróðir Jón, með guðs forsjá, ábóti á Þingeyrum, bróðir Nikulás, príor á Möðruvöllum, Finnbogi Einarsson …“
Dómur um undanfæri Ólafs Filippussonar af kirkjugarðssaurgun, dags. 29. apríl 1512. Sama bréf og er prentað í Íslenzku fornbréfasafni VIII, nr. 308, bls. 371-372.
„Öllum mönnum þeim sem þetta bréf sjá eður heyra, senda Einar Oddsson, Jón Þorgeirsson, Grímur Jónsson, Einar Einarsson, Þórarinn Jónsson, Guðmundur Indriðason, Halldór Jónsson …“
Tylftardómur um atvist Ólafs Filippussonar að vígi Ásgríms Sigmundssonar, dags. 29. apríl 1513. Sama bréf og er prentað í Íslenzku fornbréfasafni VIII, nr. 344, bls. 422-424.
„Það gjörum vér, bróðir Einar með guðs náð, ábóti á Munkaþverá, bróðir Nikulás, með samri náð, príor á Möðruvöllum, Jón Arason ráðsmann heilagrar Hólakirkju, Finnbogi Einarsson …“
Tylftardómur klerka um að Jón Sigmundsson hefði saurgað kirkjugarðinn í Víðidalstungu þegar Ásgrímur Sigmundsson var þar veginn en Ólafur Filippusson væri sýkn þar af. Einnig um að hjónaband Ólafs og Vigdísar Jónsdóttur væri gilt og fleira. Dagsett 18. ágúst 1514. Sama bréf og er prentað í Íslenzku fornbréfasafni VIII, nr. 389, bls. 506-509.
„Vorum höygbornasta herra og náðugasta konungi, konungi Christierne, með guðs náð, Noregs og Danmerkur konungur, etc. etc. …“
Bréf til konungs, erkibiskups og ríkisráðsins í Noregi um arftöku Einars Ólafssonar eftir föður sinn, Ólaf Filippusson, ódagsett hér en mun vera frá 8. maí 1517. Sama bréf og er prentað í Íslenzku fornbréfasafni VIII, nr. 470, bls. 612-615 (b-gerð).
„Það gjöri ég, Jón prestur Þorvaldsson, officialis heilagrar Hólakirkju, fyrir vestan Öxnadalsheiði góðum mönnum viturlegt, með þessu mínu opnu bréfi …“
Jón prestur Þorvaldsson lýsir því að Ólafur Filippusson hafi svarið fyrir sér tylftareið og lýsir hann saklausan af saurgun kirkjugarðsins í Víðidalstungu og segir að Ólafur hafi mátt giftast Vigdísi Jónsdóttur, dags. 11. október 1496. Sama bréf og er prentað í Íslenzku fornbréfasafni VII, nr. 353, bls. 313-314.
„Það gjöri ég, Sigmundur prestur Steinþórsson, góðum mönnum viturlegt með þessu mínu opnu bréfi, að ég meðkennist, að ég hefi gjört og gefið Ólaf bónda Filippusson …“
Sigmundur prestur Steinþórsson segir Ólaf Filippusson enga aðild eiga að því þegar Ásgrímur Sigmundsson var drepinn í kirkjugarðinum í Víðidalstungu, dags. 6. febrúar 1500. Sama bréf og er prentað í Íslenzku fornbréfasafni VII, nr. 483, bls. 469-470.
„Og til sanninda hér um settum vér fyrstskrifaðir menn vor innsigli fyrir þessi transskriftarbréf skrifuð á Hólum í Hjaltadal …“
Ofanskrifaðir menn (í atriði 1.1) setja innsigli sín fyrir eftirritinu, dags. 6. maí 1517 (ártalið sem gefið er í bréfinu er 1507 en það mun vera rangt). Sama bréf og er prentað í Íslenzku fornbréfasafni VIII, nr. 469, bls. 611-612. Hér á eftir segir: „Hingað til ná transskriftarbréfin, nú fylgja eftir tveir biskupadómar, og supplicatia íslenskra fyrir kóng, hvör þrjú skjöl að innsigluð eru til samans við áður sagðar transskriftir.“
„Vorum høybornasta herra og náðugasta kóngi, konungi Chris[t]ierne, með guðs náð Noregs og Danmerkur konungr et cet. eller hans náðar …“
Bréf um arftöku Einars Ólafssonar eftir föður sinn, Ólaf Filippusson, dags. 8. maí 1517. Sama bréf og er prentað í Íslenzku fornbréfasafni VIII, nr. 470, bls. 612-615 (a-gerð).
„Wii Eric Walkendorff met gudz nadhe Erchebiskop i Trondem oc …“
Norska ríkisráðið samþykkir Einar Ólafsson sem réttan erfingja Solveigar Björnsdóttur, dags. 12. janúar 1518. Sama bréf og er prentað í Íslenzku fornbréfasafni VIII, nr. 494, bls. 647-649.
„Wii Andor met gudz nadhe Biscop i Berghen, mesther Christiern proesth ath apostola kirke …“
Einar Ólafsson er lýstur réttur erfingi Solveigar Björnsdóttur, dags. 22. apríl 1518. Sama bréf og er prentað í Íslenzku fornbréfasafni VIII, nr. 499, bls. 653-654. Á eftir þessu bréfi (18v-19r) er sagt að öll áðurskrifuð skjöl, dómar og úrskurðir hafi Hákon Gíslason, Sigfús Egilsson og Sveinn Jónsson samanlesið og staðfest 2. nóvember 1640.
„Öllum mönnum sem þetta bréf sjá eður heyra, senda Sigurður Daðason, Jón Ólafsson, Sigurður Ívarsson, Brandur Ólafsson, Bárður Jónsson, Þórður Þórðarson, Sveinn Þorfinnsson …“
Tylftardómur um tilkall Ólafs Filippussonar vegna Einars sonar síns til arfs eftir Solveigu Björnsdóttur, dags. 12. október 1496. Sama bréf og er prentað í Íslenzku fornbréfasafni VII, nr. 354, bls. 314-315. Á undan bréfinu (19r) stendur: „Hér skrifast til eitt dómsbréf sama máli viðlíkjandi, sem er síðar í bókinni, og hún segir verið hafa með fimm hangandi innsiglum. Sýnist muni vera, ex originali.“
Pappír með vatnsmerkjum.
Notað frá 1640 til 1740.
Notað frá 1640 til 1740.
Þrjú kver.
Óþekktur skrifari, fljótaskrift.
Umbúðir og askja frá 1997 eða fyrr.
Laus pappírsborði, festur í endana með vaxi, fylgir blöðunum en hann hefur verið notaður til að halda lausum kverunum saman. Sjá má far eftir borðann á fremstu síðu.