Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM Dipl. Isl. Fasc. LXXV,60

Landvarnadómur Hákonar Björnssonar

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1 (1r)
Landvarnadómur Hákonar Björnssonar
Upphaf

… að landsdrottinn mætti með lögum fráskilja …

Athugasemd

Afrit af niðurlagi (14 línur yfirstrikaðar) Landvarnardóms Hákonar Björnssonar, umboðsmanns í Rangárþingi.

Á spássíu við efnisgreinina stendur: Úr Landvar(ð)nardómi 1583 eða 1587.

Efnisorð
2 (1r-2v)
Skipapóstur
Upphaf

Anno 1694 þann 2. júní að Heiði í Mýrdal

Athugasemd

Afrit af Skipapósti Ólafs Einarssonar sýslumanns.

Á eftir fer vitnisburður um að rétt sé skrifað eftir Alþingisbókinni 1695, 45. pósti. Undirritaður af Sigurði Björnssyni m.e.h.

Neðst stendur: Þetta fyrrskrifað að vera rétt útkópierað meðkennir undirskrifaður Ólafur Einarsson m.e.h.

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír með vatnsmerkjum.

  • Aðalmerki: skjaldarmerki Amsterdam, fangamark AI fyrir neðan (IS5000-DIF-LXXV-60). Stærð: 129 x 117 mm, fjarlægð á milli vatnslína á báðum megin vatnsmerkisins: 127 mm.

    Mótmerki: fangamark DI (IS5000-DIF-LXXV-60-wm1). Stærð: 13 x 22 mm, fjarlægð á milli vatnslína á báðum megin vatnsmerkisins: 24 mm.

    Notað frá 1694 til 1703.

Blaðfjöldi
Tvíblöðungur (328 mm x 210 mm).
Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er 295 mm x 185 mm
  • Línufjöldi er ca 46.

Ástand
Blöðin hafa verið brotin saman og er letrið dálítið snjáð í brotunum.
Skrifarar og skrift
Að mestu ein hönd, auk nokkurra eiginhandarundirskrifta. Aftasta efnisgreinin er með hendi Ólafs Einarssonar sem skrifar nafn sitt undir m.e.h.

Óþekktur skrifari, fljótaskrift.

Band

Umbúðir og askja frá 1997 eða fyrr.

Uppruni og ferill

Uppruni
Skjalið var skrifað á Íslandi á árunum 1694 og 1703.
Aðföng
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við skjalinu 27. nóvember 1996.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • ÞS skráði samkvæmt reglum TEIP5 11. október 2016.
  • ÞÓS skráði 16. júlí 2020.
  • EM uppfærði vatnsmerkin 13. júní 2023.

Myndir af handritinu

  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Lýsigögn
×
  • Land
  • Ísland
  • Staður
  • Reykjavík
  • Stofnun
  • Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
  • Vörsludeild
  • Handritasvið
  • Safn
  • Íslensk fornbréf Árna Magnússonar
  • Safnmark
  • AM Dipl. Isl. Fasc. LXXV,60
  • Efnisorð
  • Fornbréf
  • XML
  • Opna XML færslu  
  • PDF í einni heild
  • UpplýsingarUpplýsingar
  • Athugasemdir
  • Gera athugasemdir við handrit  

Lýsigögn