„Vi Christian den femte af guds nåde, konge til Danmark og Norge …“
Afrit af konungsbréfi Kristjáns V. um ýmsar jarðir sem seldar eru Magnúsi Jónssyni, dags. 3. maí 1694. Á eftir bréfinu fylgir vitnisburður Árna Geirssonar um að bréfið hafi verið lesið upp í lögréttu 30. júní 1694. Vitnisburður um að rétt sé skrifað eftir frumbréfi undirritaður af Gísla Jónssyni og Steindóri Helgasyni, dags. 9. október 1703. Síður 3r-6r hafa að geyma annað afrit af sama bréfi.
Pappír með vatnsmerkjum.
Mótmerki 1: óþekkt fangamark (IS5000-DIF-LXXV-59_1-wm1). Stærð: 20 x 30 mm, fjarlægð á milli vatnslína á báðum megin vatnsmerkisins: 24 mm.
Notað frá 1694 til 1703.
Framleiðandi: Drewsen- Johan.
Framleiðslustaður: Strandmøllen.
Ekkert mótmerki.
Notað frá 1694 til 1703.
Óþekktir skrifarar, fljótaskrift.
Umbúðir og askja frá 1997 eða fyrr.