„Vi underskrefne Sal. Rigs Admiral Herre Hendrich Bielkes arfvinger …“
Afrit af jarðakaupabréfi dags. 25. apríl 1690, þar sem erfingjar Henriks Bielke selja Jóni Péturssyni jarðir í Bakkaumboði í Rangárvallasýslu. Á eftir bréfinu fer vitnisburður á dönsku um að rétt sé skrifað eftir frumbréfi 18. júní 1703 undirritaður af Rasmus Hansen og Gísla Jónssyni. Á síðu 2v er ritað: Kaupbréf fyrir þeim jörðum í Rangárvallasýslu sem kallast Bakkaumboð og nú (1703) tilheyrir 2 bræðrum, sr. Jóni Erlingssyni og sr. Hannesi Erlingssyni.
Pappír með vatnsmerkjum.
Mótmerki: nafn PIOLLY (IS5000-DIF-LXXV-56-wm1). Stærð: 17 x 86 mm, fjarlægð á milli vatnslína á báðum megin vatnsmerkisins: 112 mm.
Notað frá 1680 til 1703.
Óþekktur skrifari, fljótaskrift.
Umbúðir og askja frá 1997 eða fyrr.