„Eftir því að ég undirskrifaður Gísli Árnason hefi séð og yfirlesið skikkun míns allra náðugasta herra kóngs Friðriks þess fjórða útgefna …“
Afrit af jarðabréfi dags. 23. febrúar 1703, þar sem Gísli Árnason gerir grein fyrir jörð sinni, Skarðshlíð í Eyjafjallasveit.
„Anno 1698, þann 17. dag septembris að Sælingsdalstungugerði í Hvammsveit, framfór svofelldur gjörningur og arfskiptisgjöf …“
Afrit af jarðakaupabréfi dags. 17. september 1698 þar sem Árni Loftsson selur syni sínum, Gísla Árnasyni, jörðina Skarðshlíð. Auk Árna og Gísla undirrita Eiríkur Guðbrandsson og Jón Magnússon.
„Anno 1688 þann 8. septembris að Sælingsdal í Hvammsveit fór fram svofeldur gjörningur millum eftirskrifaðra manna …“
Afrit af jarðakaupabréfi dags. 8. september 1688 þar sem Árni Loftsson kaupir jörðina Skarðshlíð af Christoffer Heidemann. Með undirskriftum fyrrnefndra auk þessara manna: Christian Müller, Guðmundur Sigurðsson, Brynjólfur Jónsson, Jón Eyjólfsson. Að „þessar tvær bréfa copium“ séu réttar votta Þorlákur Jónsson m.e.h. og Ásmundur Jónsson m.e.h., dags. 7. mars 1703. Á 4v er ritað Jarðabréf Gísla Árnasonar.
Pappír með vatnsmerkjum.
Ekkert mótmerki.
Notað í 1703.
Með hendi Gísla Árnasonar, fljótaskrift.
Umbúðir og askja frá 1997 eða fyrr.