„Vi underskrefne Sal. Rigs Admiral Herre Hendrich Bielkes arfvinger …“
Afrit af jarðakaupabréfi dags. 15. mars 1688, þar sem erfingjar Henriks Bielke selja Christoffer Heideman jörðina Drangshlíð. Á eftir bréfinu fer vitnisburður á íslensku um að það hafi verið lesið upp í Lögréttu 3. júlí 1688. Undir hann hafa upprunalega skrifað: Sigurður Björnsson, Magnús Jónsson og Árni Geirsson.
„Jeg Christoffer Heideman Kongl. Majst Assessor udi Commercii Collegio …“
Afrit af jarðakaupabréfi dags. 23. júní 1693 þar sem Christoffer Heideman selur Þorkeli Jónssyni í Innri Njarðvík, jörðina Drangshlíð. Vitnisburður á íslensku um að bréfið hafi verið lesið upp í Lögréttu 6. júlí 1693. Vitundarvottar eru hinir sömu og áður: Sigurður Björnsson, Magnús Jónsson og Árni Geirsson. Vitnisburður á íslensku 14. júní 1703 um að rétt sé skrifað eftir frumbréfi. Undir skrifa Gísli Ólafsson og Halldór Ólafsson Innri Njarðvík m.e.h. Vitnisburður um landskuld af Drangshlíð, dags. 26. júní 1703, undirritað af Þorkeli Jónssyni m.e.h.
Pappír með vatnsmerkjum.
Notað frá 1688 til 1703.
Með hendi Árna Geirssonar alþingisskrifara, fljótaskrift.
Umbúðir og askja frá 1997 eða fyrr.