Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM Dipl. Isl. Fasc. LXXV,36

Jarðakaupabréf

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-2v)
Jarðakaupabréf
Upphaf

Anno 1631 þann 10. dag novembris á Munkaþverá í Eyjafirði fór svo látandi kaup og gjörningur fram þessara herramanna á milli, Magnúsar bónda Björnssonar og Nikulásar Einarssonar …

Niðurlag

… hvað allt vér undirskrifaðir vottum er hvorttveggja saman lásum í Skálholti þann 7. dag martii mánaðar anno Christi 1708.

Athugasemd

Afrit af jarðakaupabréfi dags. 10. nóvember 1631 þar sem Nikulás Einarsson selur Magnúsi bónda Björnssyni jörðina Reykjahlíð við Mývatn. Afritið er dagsett 7. mars 1708

Á eftir afritinu fer vitnisburður um að rétt sé eftir frumbréfinu skrifað. Það sé ritað á kálfsskinn með tveimur heilum hangandi innsiglum. Tekið er fram „31“ í ártalinu 1631 sé óljóst. Undirritað af Árna Magnússyni, Magnúsi Markússyni og Þórði Þórðarsyni.

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír með vatnsmerkjum.

  • Aðalmerki: í vinnslu (IS5000-DIF-LXXV-36). Stærð: 126 x 119 mm, fjarlægð á milli vatnslína á báðum megin vatnsmerkisins: 127 mm.

    Ekkert mótmerki.

    Notað í 1708.

Blaðfjöldi
Eitt tvinn (210 mm x 162 mm).
Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er 155 mm x 125 mm
  • Línufjöldi er 12-18.

Ástand
Blöðin eru í góðu ásigkomulagi.
Skrifarar og skrift
Ein hönd auk eiginhandaráritana.

Óþekktur skrifari, fljótaskrift.

Band

Umbúðir og askja frá 1997 eða fyrr.

Uppruni og ferill

Uppruni
Skjalið var skrifað á Íslandi 7. mars 1708.
Aðföng
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við skjalinu 27. nóvember 1996.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • BGÁ skráði samkvæmt reglum TEIP5 3. mars 2017.
  • ÞS yfirfór og jók við 21. júlí 2017. ÞÓS skráði 17. júlí 2020.
  • EM uppfærði vatnsmerkin 12. júní 2023.

Myndir af handritinu

  • Svarthvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Lýsigögn
×

Lýsigögn