Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM Dipl. Isl. Fasc. LXXV,31

Umboðsbréf Ara Magnússonar ; Íslandi

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r)
Umboðsbréf Ara Magnússonar
Titill í handriti

Umboðsbréf Ara Magnússonar svo látandi orð eft[ir] orð sem hér greinir

Upphaf

Það meðkennist ég Björn Magnússon kóngs umboðsmann yfir Barðastrandarsýslum, að ég hef veitt og kennt …

Athugasemd

Björn Magnússon sýslumaður færir bróður sínum, Ara Magnússyni, umboð yfir syðra part Barðastrandarsýslu í næstum þrjú ár, 1608-1610. Bréfið er ódagsett.

Á 1v er utanáskrift.

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír með vatnsmerkjum.

  • Aðalmerki: skjaldarmerki Nürnberg (IS5000-DIF-LXXV-31). Stærð: 35 x 21 mm, fjarlægð á milli vatnslína á báðum megin vatnsmerkisins: 36 mm.

    Notað frá 1608 til 1628.

Blaðfjöldi
Eitt blað (327 mm x 208 mm).
Ástand
Brotalínur og viðgerðir.
Skrifarar og skrift
Ein hönd.

Óþekktur skrifari, fljótaskrift.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Safnmarkið er skrifað efst á bl. 1r auk ártalsins 1608.

Band

Umbúðir og askja frá 1997 eða fyrr.

Uppruni og ferill

Uppruni
Skjalið var skrifað á Íslandi ca. 1608-1650.
Aðföng
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við skjalinu á árinu 1997.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • BGÁ skráði samkvæmt reglum TEIP5 21. ágúst 2018. ÞÓS skráði 23. júlí 2020. EM uppfærði vatnsmerkin 8. júní 2023.

Myndir af handritinu

  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Lýsigögn
×

Lýsigögn