„Christen mett Gudz naade …“
Uppskrift af bréfum Kristján konungs III. til Daða bónda Guðmundssonar og Péturs bónda Eianrssonar um að þeir sé Lauritz Múla hjálplegir að fanga Jón Arason, auk annars efnis. Á 1v er ritað: Heimreiðarskrá biskups Jóns Arasonar til Sauðafells, anno 1550. Af Daða til samans skrifuð. Item einn dómur og þrjú kóngsbréf. Nöfn sem koma fyrir: Lárus (Laurentius/Lauritz) Mule, Daði Guðmundsson, Pétur Einarsson, Jón Arason, Ormur Stullason, Erlingur Þorvaldsson, Marteinn Ómarsson. Á 4v er textabútur sem búið er að yfirstrika.
Óþekktur skrifari, fljótaskrift.
Umbúðir og askja frá 1997 eða fyrr.
Lítið, ungt umslag fylgir sem á er ritað 1550-52 og NB Þetta er ónýtt.