„Það gjörum vér Jón Þorsteinsson og Jón Jónsson, Jón Sigmundsson og Páll Ólafsson góðum mönnum kunnugt með þessu voru opnu bréfi …“
Vitnisburður Jóns Þorsteinssonar og þriggja annarra manna um að aldrei hafi verið goldinn tollur til Vatnsfjarðar nema af Meiri-Hlíð. Afrit af bréfi sem dagsett er 2. september 1470. Skjalið er prentað eftir öðru afriti (AM Apogr. 980), með lesbrigðum úr LXXV 4, í Íslenzku fornbréfasafniV, nr. 517, bls. 577-579. Athugasemdir um efni bréfsins, ritaðar með sömu hendi, eru á 1v undir fyrirsögninni Til minnis.
Óþekktur skrifari, blendingsskrift.
Safnmarkið skrifað efst á bl. 1r auk ártalsins 1470. Neðst á síðunni er ritað með blýanti: Cfr. Apogr. 980 | AM. 234 4to bls. 532-533.
Umbúðir og askja frá 1997 eða fyrr.
Laus seðill með hendi Árna Magnússonar þar sem hann segist hafa fengið uppskriftina, sem sé ófölsuð, úr einum hverjum chartis herra Odds biskups.