Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM Dipl. Isl. Fasc. LXXIV,37

Jarðapartabréf fyrir Stóra Kálfalæk, Litla Kálfalæk og Hundadal í Borgarfjarðarsýslu

Innihald

(1r-v)
Jarðapartabréf fyrir Stóra Kálfalæk, Litla Kálfalæk og Hundadal í Borgarfjarðarsýslu
Upphaf

Ég Egill Finnsson gjöri auglýst eftir því mér vitanlegt er um þá jarðaparta sem nú eru …

Athugasemd

Yfirskrift á 1r: Auglýsing Egils Finssonar um hans jarðaparta nefnilega í Stóra Kálfalæk, Litla Kálfalæk og Stóra Hundadal.

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír með vatnsmerkjum.

  • Mótmerki: óþekkt fangamark (IS5000-DIF-LXXIV-37). Stærð: 22 x 34 mm, fjarlægð á milli vatnslína á báðum megin vatnsmerkisins: 26 mm.

    Notað í 1704.

    Framleiðandi: Drewsen- Johan.

    Framleiðslustaður: Strandmøllen.

Blaðfjöldi
Eitt blað (321 mm x 250 mm).
Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er248 mm x 188 mm.
  • Línufjöldi er 39.

Skrifarar og skrift

Egill Finnsson, léttiskrift.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Safnmarkið er skrifað á vinstra horn bl. 1r.

Dagsetning er skrifuð með blýanti á 1r.

Band

Umbúðir og askja frá 1996 eða fyrr (290 mm x 365 mm x 9 mm).

Uppruni og ferill

Uppruni

Bréfið var skrifað á Stóra Kálfalæk í Barðastrandasýslu 1704.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu á árinu 1996 eða 1997.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • JH skráði samkvæmt reglum TEIP5 23. ágúst 2017. ÞÓS skráði 16. júlí 2020. EM uppfærði vatnsmerkin 13. júní 2023.

Viðgerðarsaga

Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.

Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.

Myndir af handritinu

  • Svarthvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Lýsigögn
×

Lýsigögn