Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM Dipl. Isl. Fasc. LXXIV,17

Stefnubirting ; Ísland

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-2v)
Stefnubirting
Upphaf

Eg Árni Geirmundsson í löglegu umboði herra Guðbrands Þorlákssonar á Hólum, stefni þér Steinþór Gíslason …

Niðurlag

… hann væri þar um áminntur.

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír með vatnsmerkjum.

  • Aðalmerki: nautshaus með kórónu (IS5000-DIF-LXXIV-17). Stærð: 61 x 46 mm, fjarlægð á milli vatnslína á báðum megin vatnsmerkisins: 52 mm.

    Ekkert mótmerki.

    Notað í 1606.

Blaðfjöldi
Tvíblöðungur (200 mm x 166 mm). Bl. 2 er autt.
Kveraskipan
Tvinn.
Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca 165 mm x 140 mm.
  • Línufjöldi er 24.

Ástand

Blöðin eru skítug og með rakablettum.

Skrifarar og skrift
Tvær hendur.

Bl. 1r: Óþekktur skrifari, blendingsskrift.

Bl. 1v: Óþekktur skrifari, blendingsskrift.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Strikað yfir nafnið Árni Geirmundsson og nafnið Erlendur Erlendsson krotað ofanlínu.

Yfirkrot, viðbætur og leiðréttingar.

Safnmarkið er skrifað efst í vinstra horni bl. 1r.

Dagsetning er skrifuð með blýanti efst í hægra horni bl. 1r en öftustu töluna vantar.

Band

Umbúðir og askja frá 1996 eða fyrr (290 mm x 365 mm x 9 mm).

Uppruni og ferill

Uppruni

Bréfið var skrifað á Íslandi, Reynistað í Skagafirði, 21. júní 1606.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu á árinu 1996 eða 1997.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • ÞÓS skráði 20. júlí 2020.
  • JH skráði samkvæmt reglum TEIP5 21. ágúst 2017.
  • ÞS lagfærði og jók við 3. október 2017.
  • EM uppfærði vatnsmerkin 13. júní 2023.

Viðgerðarsaga

Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.

Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.

Myndir af handritinu

  • Svarthvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Lýsigögn
×
  • Land
  • Ísland
  • Staður
  • Reykjavík
  • Stofnun
  • Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
  • Vörsludeild
  • Handritasvið
  • Safn
  • Íslensk fornbréf Árna Magnússonar
  • Safnmark
  • AM Dipl. Isl. Fasc. LXXIV,17
  • Efnisorð
  • Fornbréf
  • XML
  • Opna XML færslu  
  • PDF í einni heild
  • UpplýsingarUpplýsingar
  • Athugasemdir
  • Gera athugasemdir við handrit  
Efni skjals
×
  1. Stefnubirting

Lýsigögn