„Kvittanir fyrir portio Hagakirkju sem ég hefi fundið eður þeir vita að vænast fyrir sig …“
„… lagt til þessa kirkjureiknings að mér hefur hér kunnigt verið.“
Gísli biskup Jónsson kvittar síra Magnús Eyjólfsson um reikningsskap Hagakirkju 27. ágúst 1568. Skjalið er prentað í Íslenzku fornbréfasafni XV, nr. 115, bls. 139-143.. Þar er vísað í útgáfu frumbréfanna í Íslenzku fornbréfasafni VII, IX og X, og Alþingisbókum Íslands. Enn fremur eru sum skjölin uppskrifuð í AM Dipl. Isl. Apogr., þ.e. skjöl 1143, 1370, 1384, 1385.
Pappír með vatnsmerkjum.
Ekkert mótmerki.
Notað frá 1590 til 1610.
Óþekktur skrifari, léttiskrift.
Dagsetningin 1600 er skrifuð með blýanti efst í vinstra horni bl. 1r.
Safnmarkið er skrifað undir ártalinu á bl. 1r.
Umbúðir og askja frá 1996 eða fyrr (290 mm x 365 mm x 9 mm).
Skjalið var skrifað á Íslandi ca 1600.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu á árinu 1996 eða 1997.
Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.
Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.