Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM Dipl. Isl. Fasc. LXXIV,13

Vitnisburðarbréf um eign Hagakirkju í Barðastrandasýslu ; Ísland

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-1v)
Vitnisburðarbréf um eign Hagakirkju í Barðastrandasýslu
Upphaf

Eg Ormur Erlingsson auglýsi og opinbera gjöri með þessu mínu sanninda vitnisburðarbréfi …

Niðurlag

… skrifað að Haga á Barðaströnd þann iiij dag junii anno 1600.

Athugasemd

Á bl. 2r er vitnisburður Jóns Egilssonar og Sæmundar Jónssonar um að rétt sé haft eftir Ormi Erlingssyni og Jóni Magnússyni eldra.

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír með vatnsmerkjum.

  • Aðalmerki: óþekkt skjaldarmerki skipt í fjóra hlúta (IS5000-DIF-LXXIV-13), bl. 1. Stærð: 63 x 65 mm, fjarlægð á milli vatnslína á báðum megin vatnsmerkisins: 55 mm.

    Ekkert mótmerki.

    Notað í 1600.

Blaðfjöldi
Tvíblöðungur (198 mm x 163 mm). Bl. 2v að mestu leyti autt.
Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca 150 mm x 135-140 mm.
  • Línufjöldi 23-24 (8 á bl. 2r).

Skrifarar og skrift

Óþekktur skrifari, léttiskrift.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Safnmarkið er skrifað efst á bl. 1r.

Á bl. 2v stendur: Vitnisburður Orms Erlingssonar um Hestavík 1600.

Band

Umbúðir og askja frá 1996 eða fyrr (290 mm x 365 mm x 9 mm).

Innsigli

Tvö innsigli, pappírsmiði yfir öðru en hitt er að hluta til dottið af.

Uppruni og ferill

Uppruni

Bréfið var skrifað á Íslandi 4. júní 1600.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu á árinu 1996 eða 1997.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • ÞÓS skráði 23. júlí 2020.
  • JH skráði samkvæmt reglum TEIP5 1. ágúst 2017.
  • ÞS lagfærði og jók við 2. október 2017.
  • EM uppfærði vatnsmerkin 13. júní 2023.

Viðgerðarsaga

Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.

Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.

Myndir af handritinu

  • Svarthvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Lýsigögn
×

Lýsigögn