„Anno 1597 á föstudaginn næstan eftir Pétursmessu og Páls á almennilegu Öxarárþingi eftir lögfestu Péturs Pálssonar, vorum við Jón Jónsson og Skúli Jónsson þar staddir …“
„… Og til sanninda hér um þrykkjum við okkar innsiglum fyrir þetta bréf hvert skrifað var í sama stað, degi og ári sem fyrr segir.“
Um arf Jóns Björnssonar og Magnúsar Björnssonar eftir föðursystur sína, Þórunni Jónsdóttur. Á bl. 4v stendur: Tilboð Jóns Björnssonar að svara þeim lögmönnum sem uppá arf Þórunnar Jónsdóttur vildu tala. NB 1597.
Óþekktur skrifari, léttiskrift.
Safnmarkið er skrifað efst á bl. 1r.
Umbúðir og askja frá 1996 eða fyrr (290 mm x 365 mm x 9 mm).
Leifar af tveimur innsiglum.
Bréfið var skrifað á Íslandi 1597.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu á árinu 1996 eða 1997.
Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.
Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.