„Heilsa í Guði föður fyrir Jesum Kristum tilsendist yður frómi dándimann Björn bóndi Benediktsson …“
„… skrifað á Stað sunnudaginn næstan eftir 7 vikna fardaga. Sigurður Jónsson.“
Sendibréf frá Sigurði Jónssyni til Björns bónda Benediktssonar um morðbréfamál Guðbrands Þorlákssonar biskups. Utanáskrift: Þeim fróma og velvísa dándimanni Birni Benediktssyni með góðvild tilskrifað.
Óþekktur skrifari,léttiskrift.
Ártalið 1592 er skrifað með blýanti efst í vinstra horni bl. 1r.
Safnmarkið er skrifað efst á bl. 1r.
Fyrir ofan utanáskrift hefur verið bætt við síðar umsögn um efni bréfsins.
Umbúðir og askja frá 1996 eða fyrr (290 mm x 365 mm x 9 mm).
Far eftir innsigli.
Bréfið var skrifað á Íslandi 1592.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu á árinu 1996 eða 1997.
Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.
Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.