Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM Dipl. Isl. Fasc. LXXIII,22

Vitnisburðarbréf

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r)
Vitnisburðarbréf
Upphaf

Það meðkennuist ég Guðmundur Steinsson með þessu mínu opnu bréfi að ég var vistfastur í Ögri í Ísafirði hjá mínum húsbónda Magnúsi heitnum Jónssyni …

Athugasemd

Guðmundur Steinsson staðfestir að hann hafi heyrt Magnús Jónsson oft og tíðum lýsa því að Elín Magnúsdóttir, dóttir hans, skyldi eignast jörðina Þóroddsstaði (réttara Þórustaði, sbr. utanáskrift). Bréfið er dagsett 27. apríl 1598.

Utanáskrift á bakhlið: Vitnisburður upp á lýsing Magnúsar heitins um Þórustaði.

Lýsing á handriti

Blaðefni
Skinn.
Blaðfjöldi
Eitt blað (73 mm x 227 mm).
Ástand
Brotalínur.
Skrifarar og skrift
Ein hönd.

Óþekktur skrifari, léttiskrift.

Band

Umbúðir og askja frá 1997 eða fyrr.

Innsigli

Innsigli Guðmundar Steinssonar er fyrir bréfinu. Þvengur þess ber með sér að vera skorinn af spássíu handrits því að leifar af græn- og rauðflúruðum upphafsstaf má sjá auk nokkurra bókstafa ritaða með svörtu bleki.

Uppruni og ferill

Uppruni
Skrifað á Hóli í Bolungarvík 27. apríl 1598.
Aðföng
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við skjalinu í apríl 1997.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • BGÁ skráði samkvæmt reglum TEIP5 23. maí 2018.

Viðgerðarsaga

Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1997 eða fyrr.

Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.

Myndir af handritinu

  • Svarthvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Lýsigögn
×

Lýsigögn