„Það meðkennuist ég Guðmundur Steinsson með þessu mínu opnu bréfi að ég var vistfastur í Ögri í Ísafirði hjá mínum húsbónda Magnúsi heitnum Jónssyni …“
Guðmundur Steinsson staðfestir að hann hafi heyrt Magnús Jónsson oft og tíðum lýsa því að Elín Magnúsdóttir, dóttir hans, skyldi eignast jörðina Þóroddsstaði (réttara Þórustaði, sbr. utanáskrift). Bréfið er dagsett 27. apríl 1598. Utanáskrift á bakhlið: Vitnisburður upp á lýsing Magnúsar heitins um Þórustaði.
Óþekktur skrifari, léttiskrift.
Umbúðir og askja frá 1997 eða fyrr.
Innsigli Guðmundar Steinssonar er fyrir bréfinu. Þvengur þess ber með sér að vera skorinn af spássíu handrits því að leifar af græn- og rauðflúruðum upphafsstaf má sjá auk nokkurra bókstafa ritaða með svörtu bleki.
Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1997 eða fyrr.
Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.