„Svofelldan vitnisburð ber ég Ingibjörg Salómonsdóttir að hjá mér var vistföst í seytján ár sú kona sem hét Valgerður Gunnlaugsdóttir …“
Íslenzkt fornbréfasafn XIV. nr. 430, bls. 609. Reykjavík 1944-1949.
Ingibjörg Salómonsdóttir ber þann vitnisburð að Valgerður Gunnlaugsdóttir hafi sagt henni að Sólveig Björnsdóttir hafi látist á eftir syni sínum, Jóni Pálssyni, og bróðurdætrum, Ólöfu og Þorbjörgu, í sóttinni miklu. Bréfið er dagsett 13. apríl 1567. Göt eru fyrir tvo innsiglisþvengi sem hafa ekki varðveist.
Óþekktur skrifari, léttiskrift.
Umbúðir og askja frá 1997 eða fyrr.
Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1997 eða fyrr.
Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.