„… í vinnu og verknaði á helgum tíðum fyrir sig og sitt fólk, og öllum tíundargjöldum sem …“
Íslenzkt fornbréfasafn IX. nr. 589, bls. 709-711. Reykjavík 1909-1913.
Ólafur prestur Guðmundsson afleysir Þorstein Guðmundsson af annarri barneign með Guðrúnu Ásmundsdóttur, svo og öðrum brotum við heilaga kirkju, dags. 15. september 1534. Á bakhlið (1v) er brot af utanáskrift: … sín br[ot] og barneignir. Einnig er ritað með ungri hendi Apogr. 775. Uppskrift bréfsins með hendi Árna Magnússonar er í AM Dipl. Isl. Apogr. 775. Uppskriftin var gerð meðan bréfið var heilt.
Óþekktur skrifari, léttiskrift.
Umbúðir og askja frá 1997 eða fyrr.
Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1997 eða fyrr.
Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.