„Svo orðnir peningar voru gjörðir í milli Odds Bjarnarsonar og Bjarnar Jónssonar. Fjögur hundruð innan mánaðar …“
Íslenzkt fornbréfasafn V. nr. 151, bls. 164-165. Kaupmannahöfn 1899-1902.
Reikningur milli Odds Bjarnarsonar og Bjarnar Jónssonar, skrifaður fyrir 1458. Á bakhlið (1v) hefur Árni Magnússon ritað: Innsigla reimar 1458. Bréfið er óheilt og samanstendur af þremur ræmum sem notaðar hafa verið sem innsiglisþvengir. Árni Magnússon fjarlægði þvengina af AM Dipl. Isl. Fasc. XIV, 13 (skrifað 1458, prentað í DI V, bls. 164) og límdi á pappírsblað.
Óþekktur skrifari, léttiskrift.
Umbúðir og askja frá 1997 eða fyrr.
Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1997 eða fyrr.
Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.