Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM Dipl. Isl. Fasc. LXXII,11

Sáttargjörð

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-v)
Sáttargjörð
Upphaf

Það gjörum vér Egill Jónsson, Þormóður Arason, Arngrímur Jónsson, Einar Sigurðsson, Erlendur Jónsson, Þórarinn Gíslason, Ólafur Oddsson …

Notaskrá

Íslenzkt fornbréfasafn XIII. nr. 146, bls. 191–192. Kaupmannahöfn 1933–1939.

Athugasemd

Sætt séra Jóns Matthíassonar, séra Snjólfs Jónssonar og Árna Gíslasonar um ágreining af kaupi Núps fremra. Dags. 30. apríl 1557.

Á bakhlið (1v) er ritað: Sáttargjörðarbréf síra Jóns Matteassonar og síra Snjólfs Jónssonar.

Eftirrit er í AM Apogr. Dipl. Isl. 1017.

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni
Skinn.
Blaðfjöldi
Eitt blað (106 mm x 307 mm).
Skrifarar og skrift
Ein hönd.

Óþekktur skrifari, léttiskrift.

Band

Umbúðir og askja frá 1997 eða fyrr.

Innsigli

Þrjú innsigli eru fyrir bréfinu (Einars Sigurðssonar, Páls Grímssonar og hugsanlega Jóns Matthíassonar) en þau hafa upphaflega verið tíu. Allir innsiglisþvengir eru varðveittir.

Uppruni og ferill

Uppruni
Skrifað á Mel í Miðfirði 30. apríl 1557.
Aðföng
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við skjalinu í apríl 1997.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • BGÁ skráði samkvæmt reglum TEIP5 14. maí 2018.

Viðgerðarsaga

Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1997 eða fyrr.

Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.

Myndir af handritinu

  • Svarthvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Lýsigögn
×
  • Land
  • Ísland
  • Staður
  • Reykjavík
  • Stofnun
  • Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
  • Vörsludeild
  • Handritasvið
  • Safn
  • Íslensk fornbréf Árna Magnússonar
  • Safnmark
  • AM Dipl. Isl. Fasc. LXXII,11
  • Efnisorð
  • Fornbréf
  • XML
  • Opna XML færslu  
  • PDF í einni heild
  • UpplýsingarUpplýsingar
  • Athugasemdir
  • Gera athugasemdir við handrit  
Efni skjals
×
  1. Sáttargjörð

Lýsigögn