Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM Dipl. Isl. Fasc. XLVII,21

Vitnisburður um jarðakaup ; Ísland

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-1v)
Vitnisburður um jarðakaup
Upphaf

Það gjörum við Þorsteinn prestur Jónsson og Philipus Runólfsson góðum mönnum kunnigt …

Niðurlag

… setjum við okkur innsigli fyrir þetta bréf skrifað í sama stað og ári, degi síðar en fyrr segir.

Notaskrá

Íslenzkt fornbréfasafnIX. nr. 410, bl. 491-492. Reykjavík 1909-1913.

Athugasemd

Vitnisburður um að Jón Arason biskup seldi síra Pétri Pálssyni jörðina Ytri-Lauga í Reykjadal sem í staðinn gaf jörðina Syðri-Ey á Skagaströnd (DI IX:491-492).

Lýsing á handriti

Blaðefni
Skinn.
Blaðfjöldi
Eitt blað ca. (160 mm x 170 mm)
Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca. 75 mm x 140 mm
  • Línufjöldi er 12.

Skrifarar og skrift

Skrifari er óþekktur.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Á blaði 1v með tveimur höndum: „kaupbref fyrir ytre lauga j Reykiadal“ og „datum er rangt, það a ad vera þus fimm c xx og ix ár“ (með hendi Guðbrands biskups.

Band

Umbúðir frá 1996 eða fyrr.

Innsigli

Innsigli er ekki varðveitt.

Uppruni og ferill

Uppruni

Bréfið var skrifað á Íslandi.

Ferill

Bréfið var skrifað á Hólum 7. júní 1529.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • ÞEJ skráði samkvæmt reglum TEI P5 21. júlí 2020.

Viðgerðarsaga

Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.

Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.

Myndir af handritinu

  • Svarthvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Lýsigögn
×

Lýsigögn