„Vér skipherrar og kaupmenn í Hafnarfirði Kálus Mul, Kort Blom, Vilkin Rugg, Petur Rik, Didrik Meyar, Hanz Roholt, Jacob Toi Handborgarmenn, skipherra Hanz Kokk, Jón Mor og Matteus engelska menn …“
„… skrifað í Hafnarfirði á sama ári, degi síðar en fyrr segir.“
Íslenzkt fornbréfasafnIX. nr. 343 A, bl. 413-414. Reykjavík 1909-1913
Samningur um verslun, vigt og mæli mill Hamborgarríkis og enskra kaupmanna af einni hálfu og Alþingis fyrir hönd Íslendinga (DI IX:413). Fyrir neðan bréfið er klausa með sömu hendi um hvað kaupmennirnir vilji ef þeim tekst ekki að fá sína frakt. Bréfið var prentað í Alþingistíðindum B Nr. 522, bl. 811-814 Reykjavík 1909
Óþekktur skrifari.
Á blaði 1v með annarri hendi en bréfið: „bref vm kaupskap vtlenska“.
Umbúðir frá 1996 eða fyrr (290 mm x 379 mm x 20 mm).
Aldrei hafa verið fleiri en sjö innsigli, fjögur þeirra eru varðveitt.
Bréfið var skrifað á Íslandi.
Samningurinn var gerður á Alþingi 2. júlí 1527 en bréfið skrifað í Hafnarfirði degi síðar.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.
Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.
Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.