„Það gjörum við Jörundur prestur Steinmóðsson og Þorteinn djákni Þorkelsson góðum mönnum…“
„… innsigli fyrir þetta bréf skrifað í Skálholti fjórða kalendas dag júní, anno domini þúsund fimmhundruð tuttugu sex.“
Íslenzkt fornbréfasafnIX. nr. 296, bl. 351-352. Reykjavík 1909-1913
Vitnisburður tveggja klerka um að þeir hafi heyrt erkibiskupinn í Niðarósi lýsa því að bréf það sem hann, ásamt ráði Þrándheimsdómkirkju, hefði út gefið og sent Ögmundi biskupi til lögsagnar yfir Hólabiskupsdæmi, skyldi vera fullmektugt og hann þar með fullmektugar biskup og eigi fullt fyrir sitt ómak (DI IX:354-355).
Óþekktur skrifari.
Á blaði 1v með annarri hendi en bréfið: „Vitnis burdur sira iorvndar ok þorkels diakna vm administrationem Holastols ok kirkiu“.
Umbúðir frá 1996 eða fyrr.
Einn innsiglisþvengur hangir við bréfið en ekkert innsigli.
Bréfið var skrifað á Íslandi.
Bréfið var skrifað í Skálholti 29. maí 1526.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.
Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.
Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.