„Það gjörum vér Thomas prestur Eireksson ráðsmann heilagrar Hóladómkirkju, Magnús Björnsson, Brandur Pálsson og Pétur Helgason leikmenn …“
„… innsigli fyrir þetta bréf er skrifað var á Hólum í Hjaltadal, á sama ári og degi síðar en fyrr segir.“
Íslenzkt fornbréfasafnIX. nr. 293, bl. 351-352. Reykjavík 1909-1913
Vitnisburður um að Jón Arason biskup hafi gefið Helgu Sigurðardóttur jörðina Hallland með tíu málnytukúgildum fyrir fimm tigi hundraða en Helga gefur jafnharðan Hólakirkju til próventu (DI IX:351-352).
Óþekktur skrifari.
Umbúðir frá 1996 eða fyrr.
Svo virðist sem aldrei hafi veirð innsigli fyrir bréfinu.
Bréfið var skrifað á Íslandi.
Bréfið var skrifað á Hólum í Hjaltadal 30. apríl 1526.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.
Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.
Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.