Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM Dipl. Isl. Fasc. XLVI,22

Transskriptarbréf ; Ísland

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-1v)
Transskriptarbréf
Upphaf

Það gjörum vér Þorleifur Örnólfsson, Jón Narfason, Jón Þorsteinsson, Ketill Þorsteinsson, Jón Þorláksson og Jón Helgason góðum mönnum kunnigt …

Niðurlag

… sanninda hér um settum við okkar innsigli fyrir þetta transkriptarbréf er skrifað var á Þingeyri Þorláksmessudag á sama éri sem fyrr segir.

Notaskrá

Íslenzkt fornbréfasafnIX. nr. 244, bl. 270-271. Reykjavík 1909-1913

Athugasemd

Transskript á skiptabréf milli Guðrúnar Björnsdóttur og Solveigar Bjarnadóttur, dóttur hennar, á peningum þeim sem Solveigu höfðu til erfða fallið eftir Bjarna Andrésson föður sinn, sbr. AM Dipl. Isl. Fasc. XLVI,21 (DI IX:270).

Fyrir framan bréfið votta Jón Jónsson og Ólafur Sigurðsson að hafa lesið yfir frumbréfið með innsiglum .

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni
Skinn.
Blaðfjöldi
Eitt blað ca. (125 mm x 345 mm)
Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca. 80 mm x 320 mm
  • Línufjöldi er 15.

Skrifarar og skrift

Óþekktur skrifari.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Á blaði 1v með yngri hendi: „skiptabref j millum Gudrunar biornsdottr og solveigar dottr hennar. trannskrijftt þar vt af“.

Band

Umbúðir frá 1996 eða fyrr.

Innsigli

Ekkert innsigli er varðveitt.

Uppruni og ferill

Uppruni

Bréfið var skrifað á Íslandi.

Ferill

Frumbréfið var skrifað á Þingeyri í Dýrafirði 18. júlí 1525 en transskriptarbréfið er gert á sama stað tveimur dögum síðar.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • ÞEJ skráði samkvæmt reglum TEI P5 17. júlí 2020.

Viðgerðarsaga

Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.

Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.

Myndir af handritinu

  • Svarthvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Lýsigögn
×
  • Land
  • Ísland
  • Staður
  • Reykjavík
  • Stofnun
  • Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
  • Vörsludeild
  • Handritasvið
  • Safn
  • Íslensk fornbréf Árna Magnússonar
  • Safnmark
  • AM Dipl. Isl. Fasc. XLVI,22
  • Efnisorð
  • Fornbréf
  • XML
  • Opna XML færslu  
  • PDF í einni heild
  • UpplýsingarUpplýsingar
  • Athugasemdir
  • Gera athugasemdir við handrit  

Lýsigögn