Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM Dipl. Isl. Fasc. XLVI,10

Jarðakaupabréf. ; Ísland

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-1v)
Jarðakaupabréf.
Upphaf

Vér Ögmundur með guðs náð biskup í Skálholti gjörum góðum mönnum kunnigt með þessu …

Niðurlag

… fyrir þetta jarðakaupsbréf, skrifað í sama stað, degi og ári síðar en fyrr segir.

Notaskrá

Íslenzkt fornbréfasafnIX. nr. 148, bl. 181-182. Reykjavík 1909-1913

Athugasemd

Ögmundur biskup gerir jarðaskipti við Hólmfríði Erlendsdóttur þannig að hún fær til fullrar eignar jörðina Eyvindarmúla í Fljótshlíð en í móti fær hann jörðina alla Sandgerði er liggur á Rosthvalanesi [svo] (DI IX:181).

Vottar að bréfinu voru séra Snorri Hjálmsson og Freysteinn Grímsson.

Lýsing á handriti

Blaðefni
Skinn.
Blaðfjöldi
Eitt blað ca. (95 mm x 215 mm)
Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca. 60 mm x 190 mm
  • Línufjöldi er 11.

Skrifarar og skrift

Óþekktur skrifari.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Á blaði 1v með annarri hendi en bréfið: „kaupbref fyrir mula í fliotshlyd“.

Band

Umbúðir frá 1996 eða fyrr.

Innsigli

Tveir innsiglisþvengir hanga við bréfið.

Uppruni og ferill

Uppruni

Bréfið var skrifað á Íslandi.

Ferill

Samningurinn var gerður í Skálholti 10. nóvember 1523 en bréfið var skrifað á sama stað og degi, ári síðar.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • ÞEJ skráði samkvæmt reglum TEI P5 17. júlí 2020.

Viðgerðarsaga

Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.

Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.

Myndir af handritinu

  • Svarthvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Lýsigögn
×

Lýsigögn