Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM Dipl. Isl. Fasc. XLV,3

Dómsbréf. ; Ísland

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-1v)
Dómsbréf.
Upphaf

Það gjörum vér Jon Finnbogason officialis heilagrar Hólakirkju fyrir norðan Öxnadalsheiði, Guðmundur Jónsson, Þorsteinn Jónsson, Nikulás Vilhjálmsson, Þorgils Guðmundsson, og Steingrímur Bessason prestar Hólabiskupsdæmis …

Niðurlag

… fyrir þetta dómsbréf skrifað á Þingeyrum í Vatnsdal laugardaginn infra octavas festi corporis christi á sama ári sem fyrr segir.

Notaskrá

Íslenzkt fornbréfasafnVIII. nr. 589, bl. 783-784. Reykjavík 1906-1913

Athugasemd

Dómur sex klerka, út nefndur á prestastefnu af Helga ábóta á Þingeyrum, um festing þá, er Jón Hallgrímsson hafði fest Helenu Þórarinsdóttur. Þórarinn Jónsson í umboði Tómasar, sonar Jóns og Helenu, bar fram vitni og bréf með innsiglum Egils Grímssonar og Einars Þórðarsonar um að hjúskapurinn væri löglegur og var svo dæmt (DI VIII:783).

Bréfið er í sömu umbúðum og AM Dipl. Isl. Fasc. XLV,4.

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni
Skinn.
Blaðfjöldi
Eitt blað ca. (135 mm x 300 mm)
Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca. 105 mm x 270 mm
  • Línufjöldi er 18.

Skrifarar og skrift

Óþekktur skrifari en sama hönd og á AM Dipl. Isl. Fasc. XLV,4.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Á blaði 1v með annarri hendi er yfirskrift sem passar þó ekki við efni bréfsins: „kaup og skipti nockra manna á nockrum jördum í Hunavatnsþinge“.

Band

Umbúðir frá 1996 eða fyrr (290 mm x 370 mm x 9 mm).

Innsigli

Eitt innsigli er varðveitt og tveir innsiglisþvengir að auki.

Uppruni og ferill

Uppruni

Bréfið var skrifað á Íslandi.

Ferill

Dómurinn var gerður á Eyrarlandi 29. apríl 1521 en bréfið var skrifað á Þingeyrum 8. júní sama ár.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • ÞEJ skráði samkvæmt reglum TEI P5 15. júlí 2020.

Viðgerðarsaga

Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.

Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.

Myndir af handritinu

  • Svarthvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Lýsigögn
×
  • Land
  • Ísland
  • Staður
  • Reykjavík
  • Stofnun
  • Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
  • Vörsludeild
  • Handritasvið
  • Safn
  • Íslensk fornbréf Árna Magnússonar
  • Safnmark
  • AM Dipl. Isl. Fasc. XLV,3
  • Efnisorð
  • Fornbréf
    Dómar
  • XML
  • Opna XML færslu  
  • PDF í einni heild
  • UpplýsingarUpplýsingar
  • Athugasemdir
  • Gera athugasemdir við handrit  
Efni skjals
×
  1. Dómsbréf.

Lýsigögn